Skrifað og skrafað

Molar um málfar og miðla 847
Gott var að heyra réttilega talað um þrenn verðlaun í morgunfréttum Ríkisútvarps á sunnudagsmorgni (19.02.2012) þegar sagt var frá verðlaunaveitingum á kvikmyndahátíð. Það er hinsvegar óþarfi að tala um kvikmynd sem svokallað docudrama, – myndin er leikin heimildamynd.

Skrifað er á pressan.is (18.02.2012): Ekki eru þó allir sáttir, en einn skóli hefur gengið svo langt að banna börnum að borða nesti sem ekki mæta ákveðnum stöðlum. Nesti er eintöluorð. Ekki til í fleirtölu. Þessvegna er ekki hægt að um mörg nesti.

Í Sunnudagsmogga (19.02.2012) er opnuauglýsing þar sem segir: Viðtal við Egill Arnar Birgisson… Auglýsingahöfundar ættu að láta prófarkalesa það sem þeir láta frá sér fara. Auglýsingar með málvillum vekja ævinlega vantrú og tortryggni hjá Molaskrifara.

Nýlega var í útvarpsfréttum talað um Norsku tölfræðistofnunina. Þar var væntanlega átt við norsku Hagstofuna sem á norsku heitir Statistisk sentralbyrå. Eitthvað var það málum blandið þegar í fréttum Ríkisútvarps (19.02.2012) var fjallað um strand ítalska skemmtiferðaskipsins Costa Concorida og talað um innsiglingu. Innsigling kom ekkert við sögu. Skipið steytti á skeri þegar siglt var of nærri landi á leið framhjá eyjunni Giglio . Í fréttinni var einnig sagt að skipstjórinn hefði staðið sig illa við strandið. Molaskrifari hefði ekki tekið þannig til orða.

Formaður Hagsmunasamtaka heimilann ruglaði saman hugtökunum , heimili og hús (íbúð, fasteign) í Silfri Egils (19.02.2012). Það er hægt að veðsetja hús. Það er ekki hægt að veðsetja heimili. Þessi kona, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna er Molaskrifara minnisstæð fyrir það hve einlæglega hún gladdist yfir því að ráðist skyldi á Alþingismenn við setningu Alþingis 1. október síðastliðinn. Það gerði hún í beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins. Formaðurinn er nú daglegur gestur í fréttatímum fjölmiðla. Aldrei er þó um það fjallað hverskonar samtök þetta eru, hvað þau eru fjölmenn, hvenær og hvernig stjórn þeirra var kjörin. – Undarlegt var að heyra Baldur Óskarsson segja í Silfrinu að þjóðin þurfi Ólaf Ragnar áfram á Bessastöðum svo hann geti skipt sér af kvótamálum , stjórnarskrármálum og aðildarumsókn okkar að Evrópusambandinu. Baldur má þó eiga það að hann kom grímulaust fram fyrir hönd Ólafs Ragnars Grímssonar.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 846
Það þóttu talsverð tíðindi þegar ákveðið var í Bretlandi að svipta fyrrverandi aðalbankastjóra Royal Bank of Scotland aðalstign fyrir skömmu. Hann hafði verið aðlaður fyrir störf sín að bankamálum þegar bankabólan blés sem mest út. Hún sprakk og breska ríkið þurfti að leggja bankanum til milljarða sterlingspunda. Það er kannski ekki rétt að líkja íslensku fálkaorðunni við aðalstign. En fjölmargir útrásarvíkingar sem seinna reyndust ótíndir bankabófar og fjárglæframenn fengu fálkaorðuna þegar meðvirkni forseta Íslands var í hámarki og þessir menn voru tíðastir gestir í kvöldverðarboðum forsetahjónanna á Bessatöðum. Þegar fálkaorðan og bankabófarnir áttu í hlut var forsetinn eins og barn með brjóstsykurspoka. Fálkaorðunni var dreift , vinstri hægri eins og segir í sjónvarpsauglýsingunni.

Hvernig væri nú að þessir menn sem komu þjóðinni næstum á vonarvöl yrðu látnir skila orðunni? Þeir eiga ekki að fá að spóka sig með fálkaorðuna hvorki erlendis né hérlendis. Þannig verðum við að athægi. Það að veita þeim fálkaorðuna er þegar búið að gengisfella þetta heiðursmerki íslensku þjóðarinnar. Orðunefnd á að taka á sig rögg og krefjast þess að forseti Íslands láti þessa menn skila íslensku fálkaorðunni. Þeir áttu hana aldrei skilið.  Þetta var allt misskilingur hins meðvirka meðreiðarsveins.

Í Ríkisæútvarpinu (18.02.2012) var talað um um … aðalhlutverkið í leikriti Strindbergs Faðirinn. Hér hefði Að mat Molaskrifara átt að segja: … aðalhlutverkið í leikriti Strindbergs Föðurnum. Sama dag var í fréttum talað um að fremja sjálfsmorðstilræði. Var átt við að fremja sjálfsmorð og bana fleirum í leiðinni? Ekki alveg skýrt.

Að vinum er ég ríkur, er haft eftir afmælisbarni í Morgunblaðsinu (17.02.2012). Molaskrifari hallast að því að þarna hefði afmælisbarnið átt að segja: Af vinum er ég ríkur.

Í fréttum hefur talsvert verið fjallað um yfirvofandi eða væntanlegan brottrekstur forstjóra Fjármálaeftirlitsins vegna upplýsinga sem hann er sagður hafa látið undir höfuð leggjast að gefa árið 2001 eða fyrir ellefu árum. Það orkar tvímælis og er mjög huglægt mat þegar Fréttastofa Ríkisútvarpsins  ítrekað talar um að það sem gerðist fyrir ellefu árum hafi gerst fyrir fáeinum árum. Í huga Molaskrifara eru ellefu ár ekki fáein ár. Þrjú eða fjögur ár væru fáein ár.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 845
Í morgunþætti Rásar tvö (17.02.2012) var talað um greiðslugetu bróðursins.  Þetta grunnatriði málfræðinnar er kennt í grunnskólum landsins, – skyldi maður ætla. Í þessum sama þætti voru enskusletturnar á sínum stað hjá hinum sérstaka slúðurfregnritara Ríkisútvarpsins á Kyrrahafsströnd Bandaríkjanna sem talaði um dinner þar sem diskurinn kostaði 38 þúsund dollara.

Sá prýðilegi fréttaþulur/maður Broddi Broddason má til með að venja sig af þeim ósið að gefa okkur til kynna með raddblæ hvað honum finnst um tölur í fréttum sem hann les. Okkur kemur nákvæmlega ekkert við hvaða skoðun fréttaþulur hefur á tölunum sem hann les. Hann á að halda þeirri skoðun fyrir sig.

Nokkur umræða hefur orðið í fjölmiðlum um atkvæðagreiðslu við samþykkt frumvarpsins sem Hæstiréttur fjallaði um í vikunni. Við atkvæðagreiðslu eiga menn þrjá kosti. Með, móti, greiða ekki atkvæði eða sitja hjá eins og sagt er. Fjölmiðlar hafa greint frá því að hinn nýbakaði flokksforingi Lilja Mósesdóttir hafi hinsvegar valið fjórða kostinn. Hún hljóp úr þingsal meðan atkvæðagreiðslan fór fram. Heitir það ekki pólitískur heigulsháttur, ef satt er ?

Í Fréttablaðinu segir (17.02.2012): Kvikmyndaskóli Íslands verður í vor vígður inn í alþjóðasamtök helstu kvikmyndaskóla heimsins Cilect. Kvikmyndaskólinn fær aðild að alþjóðlegum samtökum. Hann verður ekki vígður inn í eitt eða neitt.  Fáránlegt er að tala um vígslu í þessu sambandi.

Í fréttum Ríkisútvarpsins klukkan 1400 (17.02.2012) var sagt frá nýjum stúdentagörðum sem rísa munu skammt frá Háskóla Íslands á gatnamótum þar sem mætast Oddagata, Sturlugata og Sæmundargata. Þar verða stúdentagarðarnir staðsettir eins og fréttamaður komst að orði. Þarna hefði, eins og nær ævinlega, verið betra að sleppa orðinu staðsettir.

Áskell sendi Molum eftirfarandi (17.02.2012): Eftirfarandi orð var að finna í bréfi frá lögfræðingi:  greiðsluaðlögunarumleitanir . Þetta minnir ögn á Vaðlaheiðarvegamannaverkfærahurðargeysmsluskúrslykil ….  Satt segirðu !

Molaskrifara varð það á að hlusta svolítið á Útvarp Sögu á föstudagsmorgni. Hvað eftir annað var því logið að hlustendum að þrotabú Landsbankans hefði lánað kaupendum Iceland matvörukeðjunnar í Bretlandi 300 milljarða ! Hrein ósannindi. Í fréttum hefur margsinnis komið fram að að til stendur að þrotabúið láni fimmtung verðsins til kaupanna eða 50 milljarða. Trúið varlega því sem hið heyrið í þessum fjölmiðli. – Þangað hringdi maður þennan morgun til að bjóða fram aðstoð sína  til að skrá fólk á undirskriftalista um að skora á Ólaf Ragnar að bjóða sig fram aftur. Hringja bara í Jón Val í síma 616 9070 og hann skráir hvern sem er. Undirskriftasöfnunni er lokið. Samt er undirskriftasöfnuninni ekki lokið. Endalaust rugl undir forystu gamalla stjórnmálamanna , Útvarps Sögu og forstjóra Fjölskylduhjálpar Íslands.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 844
Ummæli Jóns Sigurðssonar forstjóra Össurar um íslensku krónuna á Viðskiptaþingi hafa vakið verðskuldaða athygli, enda stórfrétt. Jón Sigurðsson hefur stýrt þessu glæsilega og öfluga fyrirtæki af snilld. Jón sagði efnislega : Íslenskan krónan er ónýtur gjaldmiðill. Hún er fíllinn í stofunni. Við eigum að taka upp evru og ganga í Evrópusambandið. Þeir sem vilja það ekki skulda okkur skýringu á afstöðu sinni  Vissulega fréttnæm ummæli. Í Viðskiptablaði Morgunblaðsins (16.02.2012) er viðtal við Jón í tilefni af ræðu hans. Fimm dálka fyrirsögnin er um að óvild mæti erlendum viðskiptamönnum á Íslandi! Ónýt krónan er í undirfyrirsögn með smáu letri. Þetta segir okkur lesendum margt um það hvernig fréttamati Morgunblaðsins er stýrt. Í sama  Morgunblaði er grein eftir Ragnar Arnalds fyrrum formann Alþýðubandalagsins og fjármálaráðherra. Ragnar segir: ,,Áróðurinn fyrir upptöku evru er af pólitískum rótum runninn, jafnt hér á landi sem á meginlandinu og byggist ekki á hagfræðilegum rökum”. Er þá forstjóri Össurar kominn út í pólitík? Ég held ekki. Ég velkist hinsvegar ekki í vafa um það hvor sé marktækari  þegar rætt er um gengi og gjaldmiðilsmál,  forstjóri Össurar eða fyrrverandi formaður Alþýðubandalagsins.

Algenga villu mátti heyra í fréttum Stöðvar tvö á miðvikudagskvöld (15.02.2012). Þar var sagt: … eins og sést á myndbandinu var engu til sparað. Hér hefði verið rétt að segja: Var ekkert til sparað. Ekki horft í kostnaðinn. Hinsvegar er sagt: Var engu til kostað, ekki lagt í neinn kostnað. Í sama fréttatíma var sagt um dóm Hæstaráttar: … verður að endurreikna öll gengistryggð lán aftur. Hér hefði nægt að tala um að endurreikna öll gengistryggð lán. Nema búið hafi verið að endurreikna lánin áður. Í fréttum Ríkissjónvarps var réttilega talað um að reikna þurfi lánin upp á nýtt.

Fréttavefurinn visir.s segir frá jarðarför söngkonunnar Whitney Houston. Bæði í fyrirsögnum og texta er talað um jarðaför: ..að ekki sé óskað eftir veru hans við jarðaför söngkonunnar. Útför, jarðsetning heitir jarðarför. Með erri. Hjá grönnum okkar í Færeyjum heitir jarðarför jarðarferð.

Lesandi sendi Molum línu (15.02.2012) og segir: ,,Mig langar að vekja athygli þína á einstaklega illa skrifaðri og óskiljanlegri frétt á mbl.is.

http://mbl.is/frettir/innlent/2012/02/14/ein_skammvin_stroka_inn_a_kynfaeri/ Molaskrifari undrast reyndar þennan ítarlega fréttaflutning, sem næstum má kalla smjatt.

Fréttavefurinn visir.is segir frá innbroti í Ljósmyndaskóla /16.02.2012): Tjónið er á milljónum króna.  Hér hefði átt að segja til dæmis: Tjónið nemur milljónum króna.

Mbl.is skýrir frá því að hestamenn hyggist mótmæla hækkun fasteignagjalda á hesthúsum. Þar segir /16.02.2012): Hefur meðal annars komið til umræðu að efna til hópreiðar eftir Miklubraut og Hringbraut og niður að Alþingi. Það myndi augljóslega hafa mikil áhrif á umferðina ef 300 til 500 knapar færu fetið á hestum sínum á miklum álagstíma. Hér er fréttin:  http://www.mbl.is/frettir/innlent/2012/02/16/hestamenn_aforma_motmaelareid/.

Nú er spurt: Hversvegna vilja hestamenn hefna sín á saklausum borgurum og trufla þá við að komast leiðar sinnar, – fólki sem ekkert hefur með álagningu fasteignagjalda að gera? Valda umferðartöfum sem geta gert lögreglu, slökkviliði og  sjúkrabílum erfitt fyrir að komast leiðar sinnar ? Ekki verður annað sagt en að þetta sé hreint ótrúlega heimskuleg hugmynd. Hestamenn eru hér á villigötum.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 843
Molalesandi sendi eftirfarandi úr mbl.is (14.02.2012): ,,Á mbl.is er fjallað um orðaskipti Steingríms J. og Sigmundar Davíðs. Þar er klaufalega komist að orði í niðurlangi stuttrar fréttar. Þar segir: ,,Hann segir að ekki hafi verið ætlunin að ummælin heyrðust í hljóðritun eða kæmust í fjölmiðla.“ Betra hefði verið að segja: Hann segir að hvorki hafi verið ætlunin að ummælin heyrðust í hljóðritun né þau kæmust í fjölmiðla.” .

Jóns Þórarinssonar tónskálds og fyrrum dagskrárstjóra í Ríkissjónvarpinu var fallega minnst í Kastljósi (15.02.2012) svo sem verðugt var. Egill Eðvarðsson er smekkmaður. Kynnir hefði þó mátt sleppa því að kalla ljóð Halldórs Laxness texta eins og nú er orðið næsta algengt að gera.

Aftur og aftur sér maður leikskólamálið að klessa á þegar bíl er ekið á annan bíl eða eitthvað annað. Þetta er úr dv.is (14.02.2012): Konan sem ók bifreiðinni reyndi að flýja af vettvangi en ekki vildi betur til en svo að hún klessi (klessti) á kyrrstæða bifreið.

Í fjögur fréttum Ríkisútvarpsins (12.02.2012) var sagt frá kjöri nýs formanns sambands ungra framsóknarmanna. Efnislega var sagt að formaðurinn hefði verið kjörinn með 32 atkvæðum eða um helmingi fylgis. Hér hefur líklega verið átt við helming greiddra atkvæði því eins og þetta var orðað er það ekki skiljanlegt. Einhverra hluta vegna er þessi fréttatími ekki aðgengilegur á vef Ríkisútvarpsins. Þegar reynt er að hlusta á hann birtist eftirfarandi á skjánum: ,,Ef til vill er dagskrárliðnum ekki lokið eða þá að upptakan er ekki lengur aðgengileg.” Dagskrárliðnum er löngu lokið og upptakan hefur aldrei verið aðgengileg.

Í kvöldfréttum Ríkissjónvarps (14.02.2012) var fjallað ( enn einu sinni  ) um hlutabréfakaup lífeyrissjóðanna og sagt að hlutabréf sem urðu verðlaus eða verðlítil að bréfin hafi orðið að gjalli. Ekki kannast Molaskrifari við þetta orðalag. Hinsvegar er talað um að einhver verði að gjalti , verði orðlaus, fallist hendur gefist upp.

Kristinn H. Gunnarsson fv. alþingismaður skrifaði athyglisverða grein í Morgunblaðið (15.02.2012):Kviksyndi lýðskrumsins tefur endurreisn. Kristinn segir m.a.; Ef ósanngjarnt er að sá greiði sem keypt hefur hús eða önnur lífsgæði og hefur notið þeirra, er þá sanngjarnt að annar greiði sem ekkert hefur fengið af þeim gæðum?Þeim fjölgar sem taka undir þessa firringu og hætta sér út í það kviksyndi sem leiðir af því að skilja í sundur áhættu og ábyrgð svo og ávinning og kostnað. Það flögraði að Molaskrifara hvort kveikjan að grein Kristin hefði verið Silfur Egils sl. sunnudag þar sem Sighvatur Björgvinsson og Guðmundur Gunnarsson  með eftirminnilegum hætti afhjúpuðu lýðskrumara (verkalýðsforkólf af Akranesi og varaformann Liljuflokksins)  sem velta vilja skuldum yfir almenning. Af hverju eiga sumir að sleppa við að borga 20% af skuldum sínum, ern aðrir ekki? Þeirri spurningu er aldrei svarað. Báðir stóðu skrumararnir  halaklipptir eftir.

Í gær (15.02.2012) fékk Molaskrifari stóryrtan tölvupóst og athugasemd við Mola frá Gunnari Þorsteinssyni dagskrárritstjóra Ríkisútvarpsins okkar allra. Hann kallaði Molaskrifara ritsóða með meiru. (Sjá athugasemdir við Mola 842) Það er svo sem í góðu lagi. Gunnar hefur rétt til að hafa hvaða skoðun sem er á Molaskrifara. Það er hans mál. Hann segist hafa skrifað athugasemdina í eigin nafni, ekki í nafni Ríkisútvarpsins. Molaskrifari efast um það. Athugasemdin var send frá netfangi Gunnars hjá Ríkisútvarpinu, um póstþjón þess (gunnar@ruv.is) , nær örugglega úr tölvu í eigu Ríkisútvarpsins og á skrifstofutíma. Ef starfsmenn Ríkisútvarpsins vilja skattyrðast við fólk úti í bæ ættu þeir að minnsta kosti að gera það utan vinnutíma, á eigin tölvu og í eigin tölvupósti.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð. Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 842
Aftur og aftur  er í útvarpsfréttum (13.02.2012) talað um að greiða með þegar átt  er  við að greiða  atkvæði með einhverju, styðja eitthvað eða einhvern í atkvæðagreiðslu.. Þetta er eiginlega  óskiljanleg villa.  Að  greiða með er að borga með.

Fleirtöluorð halda áfram að vefjast fyrir fólki . Í ambögupistli sérstaks slúðurfulltrúa  Ríkisútvarpsins  í Hollywood (13.02.2012)  var talað um  þrjú  eða  fjögur verðlaun , átti að vera þrenn eða fern verðlaun. Í DV (13.02.2012) var sagt í undirfyrirsögn að Rick Santorum hefði  unnið þrjár forkosningar í röð.  Þrennar  forkosningar hefði það átt að vera.

Gunnar  Þorsteinsson einn rúmlega 300 starfsmanna Ríkisútvarpsins, titlaður dagskrárstjóri  sendi Molaskrifara  svohljóðandi kveðju (15.02.2012):

Orðið „reytur“ er skrifað með ypsíloni og það er með ólíkindum að virðulegur vandlætari með meiru skuli ekki hafa hugmynd um það. Fáheyrt! Og hefur DV enga sómakennd? Er það hlutverk þess að vera vettvangur slíkra ritsóða? Hneyksli! Skandall! Þetta er   réttmæt og um leið kurteisleg ábending hjá dagskrárritstjóra Ríkisútvarpsins, sem hér talar væntanlega  fyrir hönd  þessarar þjóðarstofnunar. Í Molum var orðið reytur rangt stafsett. Molaskrifari  gerði  athugasemd  við að  dagskrárkynnir  Ríkisútvarpsins notaði   orðsambandbandið  að  rugla saman reytum um  fólk sem spjallaði saman, ekki fólk  sem  væri að ganga í hjónaband sem er   hin venjubundna merking. Það er engu líkara en  dagskrárritstjórinn  hafi  samið  textann sem  um var rætt, svo illa bregst hann  við. Molaskrifari er annars svolítið  hissa á orðfærinu sem  notað er í orðsendingum til hans úr Efstaleitinu.  Hvort sem um yfirmenn  eða undirmenn  er að ræða.

DV segir (13.02.2012) frá manni  sem þarf að skila  bíl  sem hann keypti  fyrir hrun. Hann  er í kröggum og getur  ekki borgað af bílnum. Fram kemur að  þegar hann keypti bílinn var hann að borga af öðrum bíl og fasteignaláni. Samt keypti hann  bíl á 4,8 milljónir  og  tók fyrir honum 100% myntkörfulán. Nú er allt í óefni og hann er sár út í stjórnvöld en segist samt  geta kennt sjálfum sér um.  Lilja  Mósesdóttir og flokkur hennar vilja  að almennir  skattþegar borgi   20% af lánum  þessa  manns sem stefndi sér í skuldir um efni fram. Er það sanngjarnt ?

Aðstandendur undirskriftasöfnunar Ólafs Ragnars Grímssonar um að fá að vera áfram á Bessastöðum í fjögur ár til viðbótar segja  að söfnunin kosti  600 þúsund krónur og kostnaður deilist á fimmtán manns.  Molaskrifari dregur þetta mjög  í efa. Líklegt er að kostnaður við  síðuhönnun,  öflun léns, tæknilega uppsetningu  söfnunarsíðunnar sé að minnsta kosti 500 þúsund krónur að mati  þeirra sem til slíks þekkja. Eru þá ótaldar  stórar daglegar  auglýsingar  t.d. á mbl.is og   sjálfsagt miklu  víðar. Þær eru ekki ókeypis eins og auglýsingarnar í Útvarpi Sögu.  En auðvitað birta   Ólafur Ragnar og  aðstandendur síðunnar  alla reikninga þegar upp er staðið í krafti  gegnsæis og heiðarleika. Talan 600 þúsund er álíka  trúleg og það að Ólafur Ragnar hafi ekki verið hafður með í ráðum þegar söfnunin var sett af stað.

Jón sendi Molaskrifara línu (13.02.2012), nefnir Bláan Ópal og spyr: Myndi molaskrifari álíta sem svo að ,,Stattu upp fyrir sjálfum þér“ teldist til góðrar notkunar á íslensku?  Svarið er nei, – en Molaskrifari lítur nú eiginlega á þetta  sem grínbull.

Á fréttavef  Ríkisútvarpsins (13.02.2012) er sagt frá mannlausum bíl sem fannst í Elliðavatni. Á vefnum segir um bílinn: Ekki er vitað hvernig hann hafnaði ofan í vatninu.  Eru ekki yfirgnæfandi líkur á  bílnum hafi verið  ekið út í vatnið, – nema hann hafi svifið í fallhlíf af himnum ofan?

Sjálfsafgreiðsluverð á bensíni kostar nú …  var sagt í sexfréttum Ríkisútvarpsins (13.02.2012). Verð kostar ekki.  Hér hefði  bara átt að segja: Sjálfsafgreiðsluverð á bensíni er nú …

Einkennileg er fælni sumra fréttamanna  við að  segja í  fyrra sumar eða  fyrra vetur. Þess í stað er sífellt talað um síðasta sumar og síðasta vetur. Í  fréttum Ríkissjónvarps (13.02.2012) var sagt: Síðasta sumar var gerð  fyrsta rannsóknin ….  Molaskrifari er ósáttur við þetta orðalag sem honum finnst óþarflega enskulegt. Molaskrifari heldur áfram að hamra á þessu.

Fín innslög í Kastljósi Ríkissjónvarpsins (13.02.2012) um líffæragjafir og  viðbrögð  við hjartastoppi. Sýna ætti  þáttinn  um hjartastopp árlega. Hið minnsta.

Áskell sendi eftirfarandi (13.02.2012): ,,Fyrr í dag fannst bíll í Vífilsstaðavatni. Frá þessu er sagt á dv.is og meðal annars rætt við mann frá slökkviliðinu. Sá sagði að hans menn hefðu leitað í bílnum sem að sjálfsögðu var „staðsettur“  tíu metra frá bílastæði við Vífilstaðavatn.”   Áskell nefnir  fleira . Sjúkrabíll hafi verið á  staðnum og  bíll frá slökkviliðinu. Molaskrifari sér reyndar ekkert  athugavert við það. Kafarar frá  slökkviliðinu  komu á staðinn og  fóru að bílnum. Enginn vissi hvort þar væri fólk eður ei.  Áskell  segir að Ritstjóri dv.is eigi að gera meiri kröfur til þeirra sem starfa hjá miðlinum.   –  Molaskrifari bætir við, að hann veit  að  ritstjóri DV vill að blaðamenn hans  vandi málfar  í fréttaskrifum, en ekki verður við öllu séð á þeim bæ frekar en annarsstaðar.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.  Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar  athugasemdir eða athugasemdir  undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 841
Þegar   Ögmundur Jónasson ráðherra í ríkisstjórn Íslands skrifar grein í  víðlesið blað undir  fyrirsögninni  Gotcha sem er  amerískt slanguryrði, er ástæða til að staldra  við. Svo læra börnin málið sem það er fyrir þeim haft. Molaskrifari er á því að  þetta sé ráðherranum heldur  til  minnkunar, en í greininni  ber hann það af sér hafa sagt ósatt í sjónvarpsviðtali.

Reyndur fréttaþulur las án þess að hika í  kvöldfréttum Ríkisútvarpsins (11.02.2012): Upplýsingar ungrar konu sem sá mann og bíl ….. varð mjög til þess að auðvelda  rannsókn málsins. Þrautreyndir þulir  mega ekki láta það henda  sig að  lesa   svona ambögu. Hér hefði átt að segja :  Upplýsingar  ungrar konu… urðu til þess að auðvelda mjög   rannsókn málsins. Þetta var leiðrétt í næstu fréttatímum. Þulir sem hlusta ekki á eigin lestur þurf að hugsa sinn gang og bæta um betur.

Jón Þórarinsson tónskáld var  einn af máttarstólpum menningarlífs á Íslandi  á seinni helmingi liðinnar aldar. Hann var alla  ævi  nátengdur Ríkisútvarpinu þar sem hann fyrst hóf störf 1938, starfaði  seinna  á tónlistardeild, var dagskrárstjóri lista- og skemmtideildar Sjónvarpsins og  sat í útvarpsráði. Hann var afkastamikið tónskáld, yfirkennari  við Tónlistarskólann í Reykjavík um langt árabil. Ritaði bækur og greinar. Skrifaði m.a. ævisögu Sveinbjörns Sveinbjörnssonar og  hljómsveitarútsetning   þjóðsöngsins er hans verk.  Molaskrifara  þótti  Ríkisútvarpið minnast fráfalls hans með heldur snautlegum hætti. Í átta fréttum  (13.02.2012) olli tækniklúður því að fréttinni um lát hans var frestað til seinni frétta. Þá var sagt að Jón hefði meðal annars samið  lag við Íslenskt vögguljóð á Hörpu við texta Halldórs Laxness. Hvenær hætta  fréttamenn að kalla ljóð höfuðskálda okkar texta ?  Minning Jóns Þórarinssonar á betra  skilið af hálfu Ríkisútvarpsins. En  svona  fer  þegar þekking á  sögunni  er hornreka innan  menningarstofnana og  söguleg vitund á ekki upp á pallborðið. Það er líka til marks um þennan skort á sögulegri vitund að ekki heyrði Molaskrifari (14.02.2012)  í upplestri úr  dagblöðum  né í sjö  eða áttafréttum Ríkisútvarpsins minnst á andlát Jónasar H. Haralz,  hagfræðings, sem var mikill  áhrifamaður í efnahagsmálum á Íslandi um áratugaskeið á  síðustu öld.  Andláti söngkonunnar  Whitney (eða Whitneyjar eins og Ríkisútvarpið segir) Houston hafa hinsvegar  verið gerð góð skil í Ríkisútvarpi og  sjónvarpi.

Í morgunþætti Sirrýjar á Rás tvö (12.02.2012) var rætt  við málfarsráðunaut  Ríkisútvarpsins. Ágætisspjall. Málfarsráðunautur hefur verk að vinna. Gæti til dæmis  leiðbeint  konunni sem kynnir  dagskrána  í sjónvarpinu um hvernig  hún ætti að  segja  hér á  Rúv  sem  dynur  tilgerðarlega í  eyrum  okkar svona  tíu sinnum hvert kvöld. Karlmaður sem kynnir  dagskrána stöku sinnum  segir  hér á Rúv  með eðlilegum framburði. Annars á að sleppa þessu hér á Rúv  bulli því auðvitað er verið að kynna dagsrá Ríkissjónvarpsins , ekki Stöðvar tvö  eða Skjásins. Skammstöfunin  RÚV getur átt heima  í erlendum samskiptum og á  skjánum, en það  á ekki að  gera orðið Ríkisútvarp útlægt í þessari grónu stofnun eins og  greinilega hefur verið gert. Málfarsráðunautur gæti svona í leiðinni gaukað því að konunni að það að rugla saman reitum  þýðir ekki að spjalla saman, það þýðir  að hefja  búskap, hefja sambúð , ganga í hjónaband (12.02.2012).

Í hádegisfréttum Ríkisútvarps (12.02.2012) var sagt frá því að  bandaríska söngkonan Whitney Houston hefði fundist látin á hótelherbergi í Los Angeles. Í fréttinni  var sagt: Ekki er þó talið að andlátið hafi borið að með voveiflegum hætti. Hér telur Molaskrifari að ekki hefði átt að nota orðið voveiflega.  Orðið voveiflega þýðir, skyndilega  eða  hræðilega  eða hörmulega. Hér hefði  til dæmis mátt segja: … ekki  er talið að andlátið hafi borið að með saknæmum  eða grunsamlegum hætti.

Bjarni Sigtryggsson skrifaði á vegg Molaskrifara á  fésbókinni: Stöð2 fjallar ítrekað í fréttum um íslenzku konfjúsíusarstofnunina. -

,,Makes me confused.“ Ekki hissa þótt  þetta rugli þig í ríminu, Bjarni!

Blár ópal sigraði símakosninguna, sagði í fyrirsögn á dv.is (12.02.2012). Skyldi símakosningin hafa verið  erfiður andstæðingur?  Sigraði ekki Blár ópal í símakosningunni? Öllu líklegra.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.  Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar  athugasemdir eða athugasemdir  undir dulnefni. – . ESG

Kreppan og ferðalögin
Margir þeirra  sem  eingöngu lesa leiðara og  Staksteina Morgunblaðsins og  hlusta á Útvarp Sögu trúa því örugglega staðfastlega að  flestar fjölskyldur á Íslandi búi við neyð og hér ríki hungursneyð af  völdum illa innrættra stjórnmálamanna, -einkum þeirra sem nú fara  með völd. Ekki þeirra  sem ollu hruninu. Það á að vera gleymt. Þeir  trúa því líka að  forstjóri  Fjölskylduhjálparinnar brauðfæði hálfa þjóðina og  forsetinn á  Bessastöðum sé bjargvættur þjóðarinnar, þegar hann  drepur  hér  niður fæti milli þess sem hann situr  kóngaveislur í útlöndum og skoðar mörgæsir á  Suðurskautslandinu með vini sínum Al Gore.  En er þetta svona? Vissulega urðu   ýmsir að ósekju illa  fyrir  barðinu á  hruninu, ekki er það  dregið í efa   eða  gert lítið úr því.  Fleiri eru þeir þó væntanlega sem ætluðu að græða á lágu gengi  , kunnu  sér ekki hóf í  fjárfestingum hvort sem það voru bílar, Range Roverar, Land Cruiserar  eða  fjögur hundruð fermetra hallir.

Sumt fólk og sumir  fjölmiðlar tala nefnilega þannig að  fram að hruninu  hafi það verið  óþekkt  fyrirbæri að einstaklingar Íslandi yrðu gjaldþrota. Líka hafi það verið óþekkt að fólk missti húsnæði vegna  skuldaklafa og  vanskila. Enginn hafi verið  borinn út  og   húseignir  aldrei seldar á nauðungaruppboðum. Því miður var þetta ekki þannig.  Fyrir hrunið   voru íslenskar  fjölskyldur skuldsettastar allra fjölskyldna í OECD  ríkjunum. Öll þekkjum við  fólk sem  verið hefur í fjárhagsvandaræðum löngu, löngu  fyrir hrunið. Sumir  einstaklingar eru reyndar sífellt í fjárhagsvandræðum. Þannig er það núna og þannig hefur það alltaf verið. Þetta vitum við öll.

Varla  er það kreppumerki nú um stundir  sem  greint er  frá á  mest lesna fréttavef landsins (14.02.2012), mbl.is. : Tæplega níu af hverjum tíu Íslendingum ferðuðust innanlands í fyrra, sem er svipað og árin á undan. Tæplega tveir þriðju aðspurðra ferðuðust til útlanda á árinu 2011, eða 63,3%, en var 56,3% í sambærilegri könnun fyrir ári síðan. Ekki er að greina miklar breytingar í ferðaáformum fólks fyrir nýbyrjað ár en langflestir hafa ferðalög af einhverju tagi á stefnuskránni.

Því ber að fagna að  svo margir  hafi getað ferðast hér innanlands og skoðað landið sitt. Líka ber að fagna því  að tæplega  tveir þriðju þeirra sem  spurðir  voru höfðu getað brugðið undir sig betri fætinum og farið út fyrir landsteinana.

Líklega ættu þeir sem  skrifa leiðara og Staksteina Morgunblaðsins  að lesa mbl.is   sér   til fróðleiks og  andlegrar uppbyggingar og hlusta minna á ruglið og rangfærslurnar sem of oft heyrast  í Útvarpi Sögu.

Molar um málfar og miðla 840
Molaskrifari fékk sér gönguferð á laugardagsmorgni (11.02.2012) og hlustaði á  Vikulokaþátt Rásar eitt. Í þátttakendavali hafa  umsjónarmenn Vikulokanna  gjarnan asklok fyrir himin og eru hreint alveg að drepast  úr nýjungagirni. Þátttakendur voru  Birgitta Jónsdóttir,  Hreyfingin, Sigurður Þ. Ragnarsson,  fulltrúi Lilju Mósesdóttur (Samstaða, – eitthvað óljóst hver á mest tilkall til þess  nafns) og   Guðmundur Steingrímsson frá Bjartri framtíð. Hallgrímur Thorsteinsson  sletti á okkur  ensku þegar hann sagði : Er þetta ekki bara  two point o ?  Efast um að allir hlustendur  hafi skilið hvað hann átti  við. Enskukunnátta á ekki að vera  skilyrði þess að geta  notið efnis  í Ríkisútvarpinu.  Þetta voru annars mjög  hefðbundnar pólitískar umræður, en umsjónarmaður á ekki að segja okkur hlustendum að   Liljuflokkurinn hafi fengið 20 prósent plús  fylgi í skoðanakönnun. Bera tölurnar ekki með sér að það voru  milli 80 og hundrað manns  sem  hugsanlega lýstu stuðning  við  flokkinn? Rúmlega 20%  fylgi er bara bull í þessu samhengi. Birgitta  Jónsdóttir  talaði um gjörvallan  þinghóp Hreyfingarinnar! Eru þau ekki þrjú? Rætt var um verðtryggingu sem  Hreyfingin og   Liljuflokkurinn vilja afnema.  Setjum svo að Molaskrifari hefði  fengið lánaða  25 lítra af bensíni   að verðmæti  5000 krónur hjá Sigurði Þ. Ragnarssyni   fulltrúa Liljuflokksins þegar bensínlíterinn kostaði 200 krónur. Væri   Sigurður  ánægður ef ég borgaði honum nú  með 20 lítrum af bensíni sem   fást fyrir 5000 krónur þegar verð eins líters er komið upp í 250 krónur? Auðvitað ekki. Um þetta snýst verðtryggingin. Gjalda  sömu verðmæti til baka. Guðmundur Steingrímsson var sá eini sem  sagði eitthvað vitrænt um verðtrygginguna. Og svona til að undirstrika  fjölbreytnina í vali þátttakenda sagði Sigður Þ. Ragnarsson  hlustendum að hann yrði í Silfri Egils í Ríkissjónvarpinu daginn eftir.  Fáránlegt.   Svo vaknar sú spurning í lokin hversvegna  er  svona þáttur  notaður til að auglýsa tónleika sem eru nátengdir einum þátttakenda?  Vikulokin eiga ekki að vera auglýsingatími.

Það kemur fyrir að Molaskrifari er svolítið ruglaður í ríminu þegar hann vaknar á morgnana. Þetta var óvenju slæmt að morgni mánudagsins (13.02.2012). Umsjónarmaður  Rásar   tvö tilkynnti  hátíðlega  klukkan 0645 að upp væri runninn 15. febrúar. Þegar fréttir  hófst klukkan 07 00 sagði fréttamaður okkur að í dag væri  13. febrúar. Það var nær lagi. En að loknum fréttum ítrekaði umsjónarmaður  morgunútvarps að í dag væri  15. febrúar.  Nú  fóru að  renna  tvær grímur á nývaknaðan  Molaskrifara. Greinilega var risin alvarleg deila í  Ríkisútvarpinu í Efstaleiti. Það var ekki sami  dagur í hljóðstofu Rásar  tvö og á fréttastofunni. Sem betur fer var þetta leiðrétt  þegar klukkan var farin  að halla í hálf átta. Það  var 13.  febrúar.  Molaskrifari var ekkert ruglaður í ríminu eða í rúminu.

Í morgunfréttum Ríkisútvarpsins (06 00 11.02.2012) var sagt: Tillögum Obama er beðið með óþreyju …  Hér átti að segja: Tillagna Obama  er beðið með óþreyju. Einhvers er beðið. Í þessum  sama fréttatíma var sagt: Vefsíða bandarísku leyniþjónustunnar CIA lá niðri í marga  klukkutíma … Molaskrifari er ekki sáttur  við þetta orðalag.  Betra hefði verið að segja að vefsíðan hefði verið  óvirk í marga klukkutíma eða að hún hefði lokast vegna árása tölvuþrjóta. Talað er um að leggja niður  starfsemi.  Og einnig er sagt að starfsemi hafi legið niðri í mörg ár.  En þótt  eitthvað bili eða  verði óvirkt um stundarsakir  eins og   sími , rafmagn, umferðarljós  eða vefsíða í þessu tilviki er hæpið að tala um að það liggi niðri.  Og enn var í þessum fréttatíma talað um stjórnarráðið þegar átti að segja stjórnarráðshúsið.

Í framhaldi af  stjórnarráðshúsinu: Svo er sagt að þegar  Helgi Sæmundsson var ritstjóri  Alþýðublaðsins  fyrir  meira en  hálfri öld og Krústjov var upp á sitt  besta í Sovétinu hafi  nafn hans  verið  skrifað á þrjá eða fjóra mismunandi vegu í Alþýðublaðinu sama daginn. Helga var nóg boðið og hann tók sig til , gekk milli blaðamanna og setjara með  miða  með nafni  Krústjovs og sagði: ,,Hér eftir  verður  nafn aðalritarans skrifað svona !”  Fréttastjóri  Ríkisútvarpsins  ætti kannski að beita sömu aðferð  til að koma fólki sínu  skilning um að  stjórnarráðið er eitt , stjórnarráðshúsið annað.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.  Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar  athugasemdir eða athugasemdir  undir dulnefni. – . ESG

Molar um málfar og miðla 839
Í fréttayfirliti  Ríkissjónvarps  (09.02.2012) var sagt: … segir maður sem vinnur að endurskoðun kerfisins. Fréttin  var um það hve  flókið kerfi almannatrygginga á Íslandi er orðið.  Svo kom fram í fréttinni að maðurinn  var Árni  Gunnarsson fv. alþingismaður, sem fer  fyrir  starfshópi sem er að endurskoða  lög um almannatryggingar.  Auðvitað átti að segja   deili á Árna í  fréttayfirlitinu, ekki bara að segja, –  segir maður sem ….  Kannski var það einhver  sem lítt þekkti til mála sem  samdi yfirlitið.

Tæknilega var útsendingin úr Hörpu á laugardagskvöld (11.02.2012) óaðfinnanleg. Það er tæknilegt afrek að koma svona  flókinni útsendingu  klakklaust  til okkar.  Molaskrifari er ekki mikið fyrir  formúlutónlist af þessu tagi, en minnir á að hann skrifaði  fyrir nokkru  eftir að hafa heyrt lagið sem bar  sigur úr býtum Mundu eftir  mér frumflutt að annaðhvort  yrði  það lag mjög  ofarlega eða neðst!  Það er reyndar talsverð hætta á að þetta lag geti orðið í efsta sætinu í Baku. Athyglisvert var hve stór hluti áhorfenda í Hörpu voru  börn og unglingar. Svona hefur uppeldshlutverk Ríkissjónvarpsins í tónlistarmálum lukkast vel !!!

Í fréttatímum beggja sjónvarpsstöðva (10.02.2012)  var ítrekað talað um kynferðismök.  Nægt hefði að tala um kynmök. Svo  er auðvitað mikið álitamál hvaða  erindi nákvæmar lýsingar á kynmökum eiga í  fréttatíma yfirleitt. Þar fannst Molaskrifara of langt gengið. Það er engin þörf á að lýsa þessu í smáatriðum. Nóg er samt.

Svo skal hér enn einu sinni minnt á muninn á  stjórnarráðinu og  stjórnarráðshúsinu, en sumir  fréttamenn  eiga ákaflega erfitt  með að átta sig á þessu. Í  fréttum Ríkissjónvarps (10.02.2012) var  talað um sprengjuna  við stjórnarráðið. Fréttaþulur  hafði þetta hinsvegar  rétt í yfirliti í fréttalok. Hann talaði um sprengjuna við  stjórnarráðshúsið. Stjórnarráðið er  samheiti yfir  öll ráðuneytin. Stjórnarráðshúsið er hvíta húsið  frá  átjándu öld sem  stendur austan við Lækjartorg. Þar er forsætisráðuneytið til húsa og  þar  fundar ríkisstjórnin. Fréttamanni tókst einnig að fara rangt með þetta í tíu fréttum Ríkisútvarpsins. Í fréttum Stöðvar tvö (11.02.2012) var svo allt einu farið að tala um  húsið sem  stjórnarráð Íslands! Þetta er endurtekið hér í þeirri trú að um síðir holi dropinn steininn.

Sjálfsagt er og eðlilegt að ræða  við lífeyrisþega um skerðingu lífeyris. Það orkaði hinsvegar  tvímælis hvernig það var gert  í Kastljósi  (10.02.2012). Þá  var rætt um skerðingu lífeyris við  vistmenn á  elliheimili. Ræða hefði átt við  fólk sem  ekki dvaldi á stofnun því aðstæður þess eru allt aðar vistmanna. Svo er það ekki fagmannlega orðað, þegar efnislega er spurt: Nú er búið að skerða lífeyrinn þinn. Finnst þér það sanngjarnt?   Þeir sem svona spyrja þurfa að lesa upp og læra betur.

Getur einhver fróður lesandi upplýst Molaskrifara um hvað það  þýðir þegar Ríkissjónvarpið sýnir okkur kvikmyndir í samstarfi við  tilteknar bifreiðategundir? Í hverju felst þetta samstarf ? Molaskrifari áttar sig ekki  á þessu.

Molaskrifari nefndi  í síðasta pistli að  fréttalestur væri líklega svolítil búbót  fyrir útvarpsstjóra.  Nú veit Molaskrifari að  útvarpsstjóri þiggur ekki laun fyrir fréttalestur og leiðréttist það hér með og hann beðinn velvirðingar á því að  þetta skyldi vera gefið í skyn.

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.  Síðuskrifari áskilur sér rétt til fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar  athugasemdir eða athugasemdir  undir dulnefni. – . ESG