Í skjóli tjáningarfrelsis getur útvarpsstjóri Útvarps Sögu, Arnþrúður Karlsdóttir farið með lygar, óhróður og dylgjur um Eið Guðnason í athugasemdum við Mola um málfar og miðla. En hún verður að standa ábyrg orða sinna. Þegar Arnþrúður Karlsdóttir hinsvegar hefur í hótunum við eiginkonu Molaskrifara eins og hún gerir í athugasemdum við Mola ( Molar 393) er mælirinn fullur , – og skekinn. Hótun Arnþrúðar Karlsdóttur um að ryðjast inn á heimili okkar er alvarlegt mál og líklega einsdæmi á blogginu.
Vinsamleg ábending til umsjónarmanna Kastljóss Ríkissjónvarpsins: Ekki misbjóða okkur með því að kalla Tómas Guðmundsson textahöfund eins og gert var í kvöld (08.09.2010). Tómas Guðmundsson var eitt fremsta ljóðskáld liðinnar aldar. Tómas Guðmundsson samdi ekki texta við gullfalleg lög Sigfúsar Halldórssonar. Sigfús samdi gullfalleg lög við mörg fegurstu ljóða Tómasar Guðmundssonar. Það er reginmunur á þessu. Ekki kalla Tómas Guðmundsson textahöfund !
SKÝRR boðar til ráðstefnu þar sem haldin verður lykilræða (Auglýsing 07.09.2010). Þarna er greinilega verið að basla við að búa til íslenskt heiti á því sem á ensku er kallað keynote speech. Hversvegna ekki aðalræða? Lykilræða er eiginlega bara bull.
Í frétt Ríkissjónvarpsins (07.09.2010) af umræðum á Alþingi um fjárfestingar lífeyrissjóðanna segir fréttamaður: og þeir eigi að gæta hagsmuni hennar. Rétt væri að segja: … gæta hagsmuna hennar.
Enska sögnin to seal þýðir bæði að innsigla og loka vel eða þétta. Íslenska sögnin að innsigla þýðir að setja innsigli á, loka með innsigli, lakka, svo vitnað sé Íslenska orðabók. Í Morgunblaðinu (08.09.2010) er fjallað um sultugerð og þar er talað um að innsigla krukkurnar í lokin. Það ætti nú að vera óþarfi á flestum heimilum. Molaskrifari er nýbúinn að sjóða dýrindis krækiberjahlaup en honum láðist alveg að innsigla krukkurnar. Lét nægja að loka þeim vel.
Velunnari Mola, Molavin, sendi eftirfarandi: „Eyjan.is: „Coleen hefur fyrirgefið honum áður en kynni hans af Jenny Tompson mun vera dropinn sem fyllti mælinn.“ Mér finnst ég sjá það æ oftar að fólk, sem þekkir ekki helstu orðtök notar þau engu að síður, og þá ranglega. Dropinn holar að vísu steininn, en það er kornið, sem fyllir mælinn. –Molavin.“
Skildu eftir svar