Í fréttum Ríkissjónvarpsins (09.09.2010) var talað um fjármálafyrirtækin,sem hlut áttu í máli. Rétt hefði verið að tala um fyrirtæki,sem hlut áttu að máli. Í sama fréttatíma Ríkissjónvarpsins var okkur sagt, að íslenska glíman væri samnorrænt sport í grunninn. Það var og.
Eitt helsta framlag Ríkisútvarpsins okkar til sígildrar tónlistar er að útvarpa sígildum tónverkum á Rás eitt frá miðnætti til klukkan 06 40 að morgni. Verkin eru kynnt þannig að á miðnætti er sagt: Nú verða flutt verk efir Beethoven , Bach , Mozart, Haydn og Liszt, — svo eru kannski einhver fleiri höfuðtónskáld nefnd. eiginlega er svona kynning næstum því verri en engin. Síðan heyrist ekki orð fyrr en að morgni þegar sagt er frá síðasta verkinu sem flutt var. Þetta er til skammar. Þetta er eins og að rétta manni landakort með útlínum landanna en án allra staðaheita. Aldrei minnist Molaskrifari þess að hafa heyrt leikin verk eftir íslensk tónskáld í næturútvarpi Rásar eitt. Hvað skyldi valda því ?
Fjölmiðlar þrástöguðst á, að þingmannanefnd væri klofin í þrennt (11.09.2010). Molaskrifari hefði sagt að nefndin væri þríklofin, – en svo er margt sinnið sem skinnið. Því skal til haga haldið að í fréttum Stöðvar tvö var ágætlega sagt, að nefndin hefði þríklofnað.Sama orðalag var reyndar einnig notað í fréttum Ríkissjónvarpsins. Plúsar fyrir það. Sagt var um þessa sömu nefnd í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins : … veruleg spenna er um niðurstöður nefndarinnar. Molaskrifari hefði orðað þetta á annan veg og sagt , til dæmis: Margir bíða spenntir eftir niðurstöðum nefndarinnar.
Margir fjölmiðlungar hafa mesta dálæti á orðinu skilaboð. Auglýsingar eru til dæmis ekki auglýsingar heldur skilaboð. Fréttamaður Ríkissjónvarps spurði fjármálaráðherra um niðurstöðu þingmannanefndarinnar og spurði: Hvaða skilaboð eru þetta út í samfélagið? Sami fréttamaður talaði einnig um skilaboð til flokksforystunnar.
Margt stangast á annars horn, sagði stjórnmálaforingi í fréttum Ríkissjónvarps (11.09.2010). Eðlilegra hefði verið að mati Molaskrifara að segja : Þar rekur sig hvað á annars horn.
Molavin í Moskvu er iðinn við að senda Molum vel þegnar athugasemdir:
Skildu eftir svar