Sumir fréttamenn eiga í erfiðleikum með sögnina að ljúka. Fréttaþulur Ríkissjónvarpsins sagði í tíufréttum (23.08.2010): … þegar sautjánda umferð úrvalsdeildar karla í knattspyrnu lauk. Sautjánda umferð lauk ekki , heldur lauk sautjándu umferð. Á þessu er munur. Munurinn á réttu og röngu. Rétt var hinsvegar farið með þetta í sexfréttum útvarps að morgni næsta dags (24.08.2010).
Stjórnendur Stöðvar tvö eru ekki vandir að virðingu sinni ,þegar að málvöndun kemur. Íþróttafréttir Stöðvar tvö eru á stundum mikill ambögugrautur. 21.08.2010 sagði íþróttafréttamaður Stöðvar tvö okkur , að sveit þeirra Bergþórs, Óskars, Benediktar og Jóns hefði borið sigur úr býtum. Sami fréttamaður sagði:.. var mikill samhugur í öllum. Fréttamaður ,sem kann ekki að beygja mannsnafnið Benedikt á ekkert erindi á skjáinn. Látið þennan fréttamann ekki fara að hljóðnema, nema einhver sem er sæmilegur í íslensku sé búinn að lesa handritin áður.
Það er röng stefna hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins að láta alla fréttamenn lesa fréttir. Sumir eru óhæfir fréttalesarar ,en geta verið ágætir fréttamenn. Þetta er sagt m.a. í tilefni fréttalesturs um miðjan dag 22.08.2010. Ef þetta á að heita einhverskonar jafnréttisstefna, þá er hún byggð á misskilningi og kemur niður á hlustendum. Það á að velja fólk til fréttalesturs sem hefur skýra rödd og áheyrilega.
Það ber ekki vott um ríkan málskilning ,þegar fréttamaður Stöðvar tvö (22..08.2010) segir: Það er ekki spurning um hvort eða hvenær slys muni verða. Verið var að segja frá slæmum frágangi verktaka á byggingarsvæðum í Hafnarfirði. Hér hefði fréttamaður átt að segja: Það er ekki spurning um hvort, heldur hvenær slys muni verða.
Skildu eftir svar