«

»

Molar um málfar og miðla 398

 Ríkissjónvarpið á  að gera ríkar  kröfur til  fréttamanna um vandað málfar.  Sami fréttamaður sagði í  kvöldfréttum  (05.09.2010) að  Gunnar Rúnar  hefði játað morð og að Reykjanesbær  hefði afhjúpað  styttu.  Hvort tveggja er rangt, að mati Molaskrifara. dv.is  sagði hinsvegar réttilega sama dag: Gunnar Rúnar Sigurþórsson hefur játað á sig morðið á Hannesi Þór Helgasyni.  Í sama fréttatíma  sagði íþróttafréttamaður: … átti í engum vandræðum með. Betra hefði verið: … átti  ekki í vandræðum með , eða átti ekki í neinum vandræðum með.

 Hildur segir allt, er  enskuleg  stríðsletursfyrirsögn á forsíðu DV  (05.09.2010) Í íslenskum málheimi er þetta ófullburða setning.

Bjarni Sigtryggsson sendi eftirfarandi:  „Á Bylgjunni hljómar nú auglýsing um nýja kvikmynd – í „þrídí“ eins og sagt er. Er íslenzka orðið *þrívídd* ekki boðlegt lengur?“  Molaskrifari bætir  við, að í  DV eða Fréttablaðinu var smáauglýsing   þar sem  hvolpar voru  boðnir til  sölu ,liturinn var sagður  black og tan. Móðurmálið á  í vök að verjast.

Tvennt  hnaut Molaskrifari um við lestur DV  á mánudagsmorgni (06.09.2010): Það hefur ekkert annað væntanlega vakið  fyrir honum….  Hér á  að  standa : … vakað fyrir honum.  Hitt  var:  Bréf  sem þeir sendu Guðmundi  nýlega  var einnig komið í hendur annarra þingmanna Framsóknarflokksins.  Hér  ætti að standa: Bréfi, sem þeir sendu Guðmundi nýlega var einnig komið í hendur …. 

Svo er tekið  til orða á visir.is (05.09.2010): Hreppsnefnd Grímsnes- og Grafningshrepps íhugar að láta að framkvæma sýnatöku á stöðum þar sem bílar frá Holræsa- og stífluþjónustunni hafa vanið komur sínar. Vafasamt   er , að ekki sé meira  sagt , að taka  svo til orða  að bílar venji komur sínar á tiltekna  staði. Betra væri að tala um staði þar sem  bílar fyrirtækisins hafi oft haft viðkomu , eða  staði þar sem oft hafi sést til bíla frá  fyrirtækinu.  

Slúðurþáttur morgunútvarps Rásar tvö er er marks um hugsunarhátt þeirra sem  ráða  efni þessa morgunþáttar. Þetta slúður er oftast morandi í málvillum ( skrítin lykt lagði úr bílnum!) og Ríkisútvarpinu til skammar. Leitisgróan vestra hlýtur að eiga valdamikla  vini í Efstaleitinu.

 Á laugardagskvöldið var  (04.09.2010) sýndu fjölmargar sjónvarpsstöðvar , þeirra á meðal NRK 2,  fyrsta þátt Rigoletto Verdis í beinni útsendingu frá Mantova. Sagt var að 148 lönd ættu aðild  að þessari útsendingu. Hljómsveitinni stjórnaði  Zubin Mehta, Placido Domingo var Rigoletto, Julia Novikova, Gilda og  Vittorio Grigola  söng hlutverk hertogans af Mantova. Stórkostleg uppfærsla, Molaskrifari horfði á þetta að nýju í kvöld (06.09.2010) í stað þess að horfa á þátt um vampýrur og drauga í boði Ríkissjónvarpsins. Ekki virðist það hafa hvarflað að ráðamönnum Ríkissjónvarps að bjóða Íslendingum   upp á þetta í beinni útsendingu á laugardagskvöldið, —   enda er enginn fótbolti í Rigoletto

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>