Er þetta mikill eða lítill fjöldi? Svona spurði fréttamaður Stöðvar tvö (18.09.2010). Vonandi er það lítill fjöldi fréttamanna,sem orðar spurningar svona.
Góður Tungutakspistill í Lesbók Mogga(19.09.2010) . Höfundur er Baldur Hafstað.
Í fréttum Ríkisútvarps (18.09.2010) var talað um að kjörstaðir opnuðu (hvað ?). Í fréttum Ríkissjónvarpsins (16.09.2010) var sagt: Hér í safninu opnar sýningin…Við tónlistarhúsið Hörpu í Reykjavík stendur að það opni á næsta ári. Í fréttum Ríkissjónvarps (18.09.2010) var hinsvegar réttilega talað um, að kjörstaðir yrðu opnaðir. Sama í morgunfréttum á sunnudagsmorgni.
Í veðurfréttum var (17.09.2010) talað um skúr á stöku stað ! Það var og.
Í Ríkisútvarpinu (16.09.2010) var talað um ganga frá lagasetningum. Ekki finnst Molaskrifara þetta vel að orði komist.
Laug að hún bæri barn undir belti, er góð fyrirsögn á visir.is (17.09.2010).
Gaf Mæðrastyrksnefnd 200 vettlinga, segir í fyrirsögn (17.09.2010) segir í fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins. Réttilega er hinsvegar í fréttinni talað um 200 vettlingapör. Enn eitt dæmið um alvarlegan skort á máltilfinningu í Efstaleiti. En þar á bæ er sjálfsagt allt í lagi að taka svona til orða, því alræmt er umburðarlyndi málfarsráðunautar.
Prýðilegt innslag var í fréttum Ríkissjónvarpsins (18.09.2010) um Geysisslysið á Vatnajökli fyrir sextíu árum. Molaskrifari man vel fagnaðarbylgjuna,sem fór um bæinn, þegar fréttin barst eins og eldur í sinu. Þess hefði þó mátt geta í að það var Kristján Júlíusson loftskeytamaður á varðskipinu Ægi,sem var út af Austurlandi,sem heyrði dauft neyðarkall af Vatnajökli. 26.september verða fjörutíu ár liðin frá því að Fokker F-27 flugvél Flugfélags Íslands fórst á Knúknum í Mykinesi í Færeyjum. Átta létu lífið, sjö Færeyingar og einn Íslendingur.
Dapurlegt er að þurfa aftur og aftur að hlusta á að eitthvað sé samkvæmt lögreglu, eins og sagt var í fréttum Ríkissjónvarps 17.09.2010.
Lottóið á næga peninga. Gæti þessvegna látið lesa yfir textana sem látnir eru dynja á okkur. Þeir sem þar stjórna eru líklega ekki miklir áhugamenn um málvernd. Annars væri ekki sagt við okkur: Um að gera að spila með ! Það fengum við sjónvarpsáhorfendur að heyra 18.09.2010.
Skildu eftir svar