«

»

Molar um málfar og miðla 454

Stundum er eins og  blaðamenn haldi að  fyrsta orð í frétt  verði að vera í nefnifalli. Úr dv.is               (08.11.2010) Viðskiptavinur Subway í Ártúnshöfða var neitað um vatn eftir að hafa keypt tvo báta á staðnum. Einhverjum er neitað um eitthvað. Þessvegna  átti setningin að byrja  svona:  Viðskiptavini Subway var neitað um…  Í sama  miðl  er sagt í frétt:  Fram kemur  að  mörg  hundruð farþegar hafi verið strandaglópar…  Molaskrifari hallast að því að hér hefði átt að segja að mörg hundruð farþegar hafi orðiið  strandaglópar. Verið var að fjalla um afleiðingar eldgossins í Eyjafjallajökli.

 Í morgunútvarpi Rásar tvö (08.11.2010) var  sagt  eitthvað á þessa leið: .. áður en geislavirknin var fundin upp. Molaskrifari er á því að  tala  eigi um að finna eitthvað upp, þegar  eitthvað nýtt er  búið til. Thomas Alva Edison fann upp rafmagnsperuna , eða glóperuna. Geislavirknin var hinsvegar uppgötvuð, því hún  hafði alltaf verið til. Menn vissu bara ekki af henni.

  Grindhvalir syntu upp á írskt land, segir í fyrirsögn á mbl.is. Varla getur þetta  talist  vel orðað.  Skárra hefði verið: Grindhvalir syntu á land á Írlandi.

   Áætlun Herjólfs hefst að nýju í fyrramálið, var sagt í kvöldfréttum Ríkisútvarpsins (08.11.2010). Eðlilegra hefði verið að segja: Herjólfur  siglir að nýju samkvæmt áætlun í fyrramálið.

 Í DV (08.11.2010) er auglýst  húsnæði með fjórum svölum.  Hér hefði átt að standa  með  fernum svölum  því  svalir er fleirtöluorð.  Eintala er svala , –  fuglategund.  Þá er  fleirtalan svölur.

Við drógum úr losun á vettvangi  Evrópu í heild  sagði  ráðherra í fréttum Ríkisútvarpsins (08.11.2010).  

 Glöggur lesandi sendi Molum eftirfarandi: Innlent | mbl | 8.11 | 17:52
Kvöldsigling á milli lands og Eyja fellur niður
Vegna mikillar hreyfingu í innsiglingu Landeyjarhafnar siglir Herjólfur ekki kl. 20 frá Vestmannaeyjum og ekki kl. 21:30 frá Landeyjahöfn.

Vegna hreyfingu, lagningu, setningu, allt eru þetta  algengar beygingarvillur. Svo er  heldur ekki  sagt  á milli lands og Eyja.  Heldur milli lands og  Eyja.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>