Aldrei er Molaskrifari sáttur við það orðalag, þegar sagt er að eitthvað sé komið til að vera. Finnst það enskulegt. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins ( 19.08.2010) var sagt að hrossasóttin margumrædda væri komin til að vera. Þetta var svo endurtekið í sjónvarpsfréttum kvöldsins. Í fréttayfirliti var sagt, að veikin væri komin varanlega til landsins. Hrossasóttin er sem sagt orðin landlæg á Íslandi.
Í fréttum Stöðvar tvö (19.08.2010) var sagt frá hljómplötuútgáfu á Íslandi. Þar var sagt að Svavar Gestsson hefði gefið út plötu með söng Fjórtán Fóstbræðra. Það er rangt. Svavar Gests gaf plötuna út. Hann var tónlistarmaður og ötull plötuútgefandi. Hann gaf út tugi hljómplatna. Svavar Gestsson var ráðherra og seinna sendiherra. Ekki er vitað til að hann hafi gefið út hljómplötur.
Íþróttafréttir Stöðvar tvö (19.08.2010) voru eins og svo oft áður mikið ambögusafn: … munu keppa fyrri leikinn,….. ef Valsstúlkum takist að fara með sigur hólmi…. Mikil meiðsli hafa verið í herbúðum íslenska liðsins… Er þá fátt eitt talið.
Þóra Arnórsdóttir og Benedikt Ketilsson fóru á Geysi, sagði umsjónarmaður Kastljóss (19.08.2010). Ekki kann Molaskrifari að meta forsetninguna á í þessu samhengi. Betra hefði verið að segja: … fóru að Geysi.
Úr mbl.is (19.08.2010): …fyrirskipaði að um 300 tímabundnum tjaldbúðum sígauna vítt og breytt um landið skyldi lokað. Tímabundnum tjaldbúðum ? Hér skín enskan í gegn. Hefur líklega verið: Temporary encampments. Vítt og breytt um landið. Það var og.
Ágætur maður að nafni Eiríkur Stefánsson er einn helsti sérfræðingur Útvarps Sögu um allt milli himins og jarðar. Hann minnir Molaskrifara um margt á „sérfræðingana“, sem í gamla daga létu móðan mása í kaffitímum, vissu allt öðrum betur, kunnu ráð við öllu og lá stundum hátt rómur. Eiríkur vill loka öllum sendiráðum Íslands, nema þremur. Hann er með utanríkisþjónustuna á heilanum eins fleiri á þessum fjölmiðli. Hann veit líklega ekki að þá munu önnur lönd loka sendiráðum sínum á Íslandi. Þá verða þrjú sendiráð í Reykjavík. Við höfum örugglega meiri tekjur af sendiráðunum hér, en sem nemur útgjöldum vegna sendiráða okkar erlendis. Enda okkar sendiráð fámenn og ódýr í rekstri. Þá vill Eiríkur loka fimm íslenskum háskólum af sjö. Hann er ókunnugur þeirri staðreynd, að menntun þegnanna er besta fjárfesting hverrar þjóðar. Auðvitað verður samt að hagræða og nýta fjármuni vel á öllum stigum menntakerfisins. Svona fullyrðingar eru ódýrt lýðskrum og í ágætum stíl við þann anda sem skapaður hefur verið í Útvarpi Sögu.
Skildu eftir svar