Það var prýðilega að orði komist á mbl.is (24.08.2010) þegar sagt var , að fellibylurinn Danielle sæki í sig veðrið.
Kvenkynsnafnorðið stígandiþýðir að eitthvað magnast eða hækkar eftir því sem á líður, – jöfn áhersluaukning,segir íslensk orðabók. Þetta orð vefst á stundum fyrir fjölmiðlamönnum. Í fréttum Stöðvar tvö (24.08.2010) var sagt frá fjölgun úrsagna úr þjóðkirkjunni. Fréttamaður sagði: Hefur orðið vart við stíganda.Þetta er ekki rétt. Stígandi beygist: nf. stígandi, þf. stígandi, þgf. stígandi,ef. stígandi. Fréttamaður hefði getað sagt: Úrsögnum úr þjóðkirkjunni hefur fjölgað undanfarna daga.Orðið stíogandi fer ekki vel í þessu samhengi að mati Molaskrifara. E.t.v hefði mátt segja: Stígandi hefur verið í úrsögnum úr þjóðkirkjunni undanfarna daga.
Enn skal hér vikið stuttlega að Útvarpi Sögu. Aðfaranótt þriðjudags (23.08.2010) heyrði Molaskrifari síðari hluta þáttar, sem líklega hafði fyrst verið fluttur að morgni föstudagsins, eða laugardagsins næsta á undan. Ekki var þess getið í þáttarlok hverjir þar hefðu komið fram. Ekki heyrði Molaskrifari betur en að það versta úr Hrafnaþingi ÍNN hefði verið dregið að hljóðnema Útvarps Sögu. Molaskrifari giskar á, að þarna hafi verið á ferðinni þáttur verðbréfamiðlarans og fjármálasnillingsins alkunna, Guðmundar Franklíns Jónssonar. Það er þó reyndar aðeins ágiskun. Bandaríska Fox sjónvarpsstöðin er eins og biblíulestur í sunnudagskóla miðað við það sem þarna var á borð borið fyrir hlustendur,sem áttu sér einskis ills von.
Þarna var talað berum orðum um að reka ætti alþingismenn út og skipa utanþingsstjórn eða „neyðarstjórn“ eins og það var kallað. Allt átti þetta að gerast í nafni lýðræðis. Það átti sem sé að koma á lýðræði með einræði ! Halda stjórnendur þessa fjölmiðils, að allir hlustendur séu fífl ? Víst er að suma má sæma þeirri nafnbót, en ekki alla eins og þarna virtist lagt til grundvallar.
Það er hættulegt, þegar sami ósannindavaðallinn er endurtekinn á hverjum degi og oft á dag. Þá fara auðtrúa sálir að trúa því að sannleikur sé á ferð. Stjórnendur Útvarps Sögu eru hér að leika ljótan leik, – ekki bara ljótan heldur og óheiðarlegan. Einræði hefur áður verið komið á nafni lýðræðis. Sagan geymir ófagrar sögur af því. Er það það, sem þetta lið vill?
Skylt er að geta þess að stundum er bitastætt efni í Útvarpi Sögu, ekki síst í morgunþáttum Markúsar. Hann ræddi í morgun (25.08.2010) við Jón Baldvin. Jón Baldvin talar mannamál og greining hans á pólitísku stöðunni var skýr, — að vanda.
Í pólitík er stundum talað um vanheilagt bandalag. Það er íslenskun á enska orðtækinu unholy alliance. Vanheilagt bandalag hefur nú myndast milli Morgunblaðsins og Jóns Bjarnasonar landbúnaðarráðherra.
Af fréttavef Ríkisútvarpsins (23.08.2010): Mynd merkt Þorvaldi Skúlasyni hefur tvívegis verið skilað til gallerísins vegna grunsemda um að það sé falsað. Hér finnst Molaskrifara að ætti að standa: Mynd merktri Þorvaldi Skúlasyni…. Það er annars svolítið sérkennileg vinnuregla hjá Ríkisútvarpinu að birta ekki morgunfréttirnar, sem fluttar eru klukkan fimm og sex á morgnana á netinu. Hvað veldur? Varla getur það verið kostnaður.
Skildu eftir svar