«

»

Molar um málfar og miðla 391

Mikið var gott að heyra fréttamann  Ríkisútvarpsins segja í sexfréttum (28.08.2010) að framkvæmdastjóri Orkubús Vestfjarða væri klumsa yfir  verðhækkunum Orkuveitu Reykjavíkur.  Vel að orði komist. Að verða klumsa er að verða orðlaus, alveg gáttaður, eiga ekki til orð, verða kjaftstopp.

  Þegar hér  er komið við sögu, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (29.08.2010). Smáorðinu  við er hér  ofaukið.Þetta er ekki ný ambaga. Þegar hér er komið sögu , hefði  fréttamaður átt að segja.  Að koma við  sögu er að eiga aðild að, eiga  þátt í.

   Sá sem samdi eftirfarandi fyrirsögn á visir.is  hefur vandað  sig fullmikið: Þrenn útköll vegna elda í matarpottum.  Hér ætti að segja:  Þrjú útköll vegna  elds í matarpottum. Raunar er Molaskrifara til efs að  eldur hafi verið í  pottunum.  Þeir hafa gleymst á  eldavél og það sem í þeim var brunnið við og af orðið reykur. Því var slökkvilið kallað til.  

  Hvað segir málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins  um slúðurpistlana ,sem morgunþáttur Rásar tvö hellir yfir  hlustendur á hverjum föstudagsmorgni ?  Þessir pistlar eru morandi í málvillum og efnið fyrir neðan það sem boðlegt getur kallast.  

  … áður en sýningunni líkur.(mbl.is 29.08.2010). Áður en sýningunni lýkur, hefði þetta átt að vera.

     Vakin er athygli á einstaklega illa skrifaðri frétt í dv. is. Eins og áður hefur verið sagt í Molum , þá á  fólk,sem svona skrifar ekki að ganga laust í námunda við nettengdar tölvur.  Hér er fréttin: http://www.dv.is/frettir/2010/8/29/eldgos-skytur-skelki-i-bringu/   Fyrirsögnin er út úr  kú. Eldgos skýtur skelki í bringu íbúa. Orðið skelkur  er karlkynsorð og þýðir ótti, uggur eða hræðsla. Skelkur beygist: skelkur, skelk,skelk,skelks.

   Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (29.08.2010)  var sagt frá lækkun skulda  Orkuveitu Reykjavíkur, ….vegna styrkingu krónunnar, sagði fréttamaður.   Þessi ambaga hefur heyrst áður. Fréttamaður hefði átt að segja: … vegna styrkingar krónunnar, — vegna einhvers..

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>