«

»

Molar um málfar og miðla 393

  Í bæklingnum Málstefna Ríkisútvarpsins (ódagsett útgáfa) eru taldar upp ýmsar orðabækur  og handbækur,sem útvarps- og sjónvarpsmönnum geta gagnast í daglegum störfum.  Þar er sleppt  ágætri bók Marðar Árnasonar, Orðkrókum, Þáttum um íslensku -ambögur, orðfimi og dagleg  álitamál. (Uglan, Íslenski kiljuklúbburinn 1991) Sú bók ætti  reyndar að vera skyldulesning  á fréttastofunni og  öðrum ritstjórnum fjölmiðla..

  Það er heldur leiðinlegt að vera sífellt að tuða um það sama, en sömu ambögurnar  koma  aftur og  aftur fyrir augu okkar og  eyru. Í fréttum Stöðvar tvö (31.08.2010)  þrástagaðist  ágætur  og  þrautreyndur fréttamaður á því að hann væri staddur við stjórnarráðið. Hann stóð við  stjórnarráðshúsið. Á skjánum,  þegar þessi frétt var flutt var hinsvegar réttilega  sagt ,-stjórnarráðshúsið, hvíta húsið við Lækjartorg,sem einu sinni var tukthús. Stjórnarráðið er samheiti á öllum stjórnardeildum eða ráðuneytum.  

 Innanum ruslið, ósannindavaðalinn og óhróðurinn  í Útvarpi  Sögu leynist, þrátt fyrir allt einn og einn ágætur þáttur. Þannig  heyrði Molaskrifari  nýlega prýðilegt viðtal Önnu Kristine Magnúsdóttur við Sigríði Guðmarsdóttur sóknarprest í Guðríðarkirkju. Um það var ekkert nema gott að segja.  En  firnaslæmur var pistill  Baldurs Ágústssonar fyrrum forsetaframbjóðanda  ( endurfluttur 31.08.2010). Hann talaði gegn  aðildarumsókn Íslands að ESB og   lét í veðri vaka, að ESB  væri að stofna her  og  ýjaði að því  að stórráðið, sem hann svo kallaði kynni að ákveða  að ESB setti upp eldflaugaskotpalla á Íslandi. Hann sagði líka ,að okkur kæmu vandamál umheimsins ekkert við. Við ættum bara að hugsa um okkar og okkur. Pistillinn í heild  var sjálfhverf þjóðremburomsa, sem lauk með því að sungið var lagið Íslandi allt. Sannkallað heimsýnarsjónarmið. Engin heimssýn á ferðinni þar.  Því fleiri talsmenn af þessu tagi,sem láta í sér heyra, því betra fyrir þá, sem vilja að aðildarumsókn að ESB nái fram að ganga.

  Hinn orðvari og kurteisi útvarpsstjóri  Útvarps  Sögu, Arnþrúður  Karlsdóttir  talaði ekki fallega um  fréttamenn Ríkisútvarps og sjónvarps hér á árum áður, einkum á upphafsárum sjónvarpsins. Sagði eitthvað í þá  veru, að allir vissu hvernig menn þetta hefðu verið og  kallaði okkur  flokkshunda. Sjálf  starfaði  hin  Framsóknarflokksbundna Arnþrúður  fyrir  Ríkisútvarpið á sínum tíma,  var dagskrárgerðarmaður á Rás  tvö, muni Molaskrifari rétt. Hún var líka kunn í stéttinni fyrir  að vera í góðu vinfengi við forystu Framsóknarflokksins. Hún hefur  þá  væntanlega  samkvæmt  eigin  orðavali og skilgreiningu  verið  flokks—-   eitthvað  , — ekki satt ?

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>