Kanasjónvarpið hefur hafið útsendingar að nýju. Ekki frá Keflavík heldur úr Efstaleitinu í Reykjavík og kallar sig Ríkissjónvarp. Á dagskrá að loknum fréttum fimmtudagskvöldið 2. september voru: Bræður og systur, bandarísk þáttaröð ,þáttur númer 69 af 85. Þá tók við Réttur er settur bandarísk þáttaröð, tíundi þáttur af tíu. Svo kom Nýgræðingur , bandarísk þáttaröð, þáttur númer 160 af 169. Þá komu fréttir og veður. Svo tók við enn ein bandarísk þáttaröð, Sporlaust, annar þáttur af tuttugu og fjórum. Klukkan rúmlega ellefu var svo endursýndur norskur þáttur.
Lungann úr kvöldinu , eða frá klukkan rétt upp úr átta fram til klukkan ellefu var hið andlega fóður ,sem þjóðinni var boðið upp á úr menningarmiðstöð þjóðarinnar í Efstaleitinu fjórar bandarískar þáttaraðir! Það er engu líkara en dagskrárstjórar Ríkissjónvarpsins hafi farið í búð í Ameríku og keypt stóran brúsa af sápulegi. Svo sitja þeir við sendana og blása þaðan bandarískum sápukúlum yfir þjóðina kvöld eftir kvöld eftir kvöld. Góður vinur Molaskrifara segir hinsvegar að dagskrárstjórar Ríkissjónvarpsins kaupi ameríska kílóvöru fyrir slikk í gámum, óséða og helli yfir okkur.
Þessi samsetning dagskrár í þjóðarsjónvarpinu okkar réttlætir það að skipt sé um alla þá starfsmenn sem koma að því að raða saman dagskrá og finna til þeirra starfa hæfara fólk.
Nú spyr Molaskrifari: Hvenær hefðu þeir Pétur Guðfinnsson,seinna útvarpsstjóri , Jón Þórarinsson, dagskrárstjóri og Emil Björnsson og dagskrárstjóri og fréttastjóri hér á árum áður sett saman slíka dagskrá. Svarið er einfalt. Aldrei. Þeir hefðu aldrei boðið þjóðinni upp á þvílík ósköp.
Molaskrifari heyrði upphafið á síðdegisútvarpi Útvarps Sögu (02.09.2010) þar sem rætt var við einn eftirlætis viðmælandann , þingmann Sjálfstæðisflokksins, Tryggva Þór Herbertsson. Hann hefur örugglega verið spurður um skýrsluna ,sem hann og bandarískur hagfræðiprófessor,vinur hans, sktrifuðu og fengi milljónir fyrir um það hve íslenska efnahagskerfið væri stálslegið, ef ekki gullslegið, og stæði frábærlega vel. Þau skötuhjú Útvarps Sögu gleymdu því örugglega að Tryggvi Þór hefði skrifaða þessa dæmalausu og arfavitlausu skýrslu.
Enn er verið að fjalla um það er fyrirtæki lét starfsmenn sína losa seyru í eða við þjóðgarðinn á Þingvöllum. Visir. is fjallaði um þetta (01.09.2010). Þar var sagt: Sýslumaðurinn á Selfossi hefur fallist á að Holræsa- og stífluþjónusta Suðurlands greiði 200 þúsund krónur í sekt fyrir að leka seyruvökva úr rotþróm út í umhverfið á vatnsverndarsvæði á Þingvöllum. Fyrirtækið lak ekki vökva. Slíkt orðalag er bara bull. Þetta orðalag var meira að segja notað í tvígang: Fram hefur komið í fréttum Stöðvar 2 að þetta var líklega ekki í fyrsta sinn sem fyrirtækið lak seyruvökva út í umhverfið. Starfsmenn fyrirtækisins losuðu seyru úr tankbíl í námunda við borholur þaðan sem neysluvatn kemur. Það er glæpsamlegt athæfi.
Skildu eftir svar