Fyrir stundu lyftu knattspyrnukonur Vals 100. titli félagsins. Svona tekur rithöfundur til orða á bloggsíðu sinni. Molaskrifari hefur aldrei heyrt þetta orðalag, en giskar á að rithöfundurinn eigi við að knattspyrnukonurnar hafi fært félagi sínu hundraðasta titilinn. Þess ber að geta sem vel er gert. Heimildamyndin um Sesselju Sigmundsdóttur á Síóheimum ,sem Ríkissjónvarpið sýndi 19.09.2010 var …