Monthly Archive: maí 2011

Molar um málfar og miðla 618

Svona vörumst við svindlurum á net-  segir í fyrisögn í DV (30.05.2011). Þarna vantar lokin á setninguna.  Aukinheldur ætti þetta  að vera:  Svona vörumst við svindlara. Við  gætum okkar á  svindlurum. Vörumst  svindlara. Verið  var að ræða um þá sem  svindla á fólki í netverslunum. Gunnar Bergmann sendi samkennurum sínum eftirfarandi setningu úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 617

Í vikudagskrá Ríkissjónvarpsins bera sunnudagskvöldin af.   Í Landanum er jafnan  áhugavert  efni víðsvegar að af landinu  og Skarfamynd  þeirra  Páls Steingrímssonar og Friðþjófs Helgasonar (29.05.2011)  var frábær. Eiginlega afrek að mati Molaskrifara. Takk fyrir það. Ekki var Molaskrifari jafnhrifin af  Töfraflautu  Mozarts, sem Kenneth Branagh hefur   skáldað í kvikmynd. Tónlistin ævinlega jafnhrífandi, en myndgerðin og …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 616

Í áttafréttum  Ríkisútvarps  (28.05.2011) var ítrekað talað um  konungsdæmi. Molaskrifari hyggur að málvenja sé að tala um konungdæmi og konungsríki. Þar var líka sagt: … Þegar leigubíll,sem hann ætlaði með var ekið af stað … . Leigubíl var ekið af stað, ekki leigubíll. Stundum kemst einhver  villa á kreik í fréttum. Villuna étur svo hver  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 615

Þórhallur  Jósepsson  sendi  Molum eftirfarandi ábendingu: Stöð eitt er fyrirbæri, sem birtir dagskrá sína á vefnum. Í dag (26.05.2011) er birt dagskrá gærdagsins. Tvær bíómyndir. Önnur þeirra er kynnt svona: „20:00 The Gauntlet   Lögreglumanninum Ben Shockley from Phoenix er falið það verkefni að halda til las Vegas og sækja þar ómerkilegt vitni í ómerkilegum réttarhöldum. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 614

  Molavin sendi eftirfarandi úr  dv. is  (25.05.2011):  Milljarðaskuldir N1 breytt í hlutafé. Það er ekki aðeins svo komið að nýfréttafólki reynist nær útilokað að ráða við aukasetningar; beyging nafnorða virðist því líka um megn.  Molaskrifari  þakkar sendinguna.  Glöggur lesandi sendi Molum eftirfarandi (26.05.2011): ,,Ég rak augun í undarlega orðnotkun í morgun í Fréttablaðinu.  Á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 613

Ásgeir Páll   sendi Molum eftirfarandi,  þegar hann hafði lesið heimasíðu forsætisráðherra: ,, …  ákvað ég að senda þér þessi skilaboð þegar ég sá  „færslu“ á Facebook síðu Jóhönnu nokkurrar Sigurðardóttur. Hún skrifar: „Nokkrar myndir úr fróðlegri og skemmtilegri fundaferð mín og velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson. Opnir fundir á Akureyri, Blönduósi og Akranesi og háskólinn á Bifröst …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 612

  Fréttatímar  sjónvarpsstöðvanna  á mánudagskvöldið (23.05.2011) voru ólíkir. Báðir  góðir,  hvor með sínum  hætti.  Ríkissjónvarpið sá þó til þess að fótbolti og  formúla fengju  rúman tíma, – Þar breytti engu þótt tæpur klukkutími af dagskránni seinna um kvöldið væri líka lagður undir fótbolta. Hjá ríkinu hefur fótboltinn alltaf forgang. Hvað eftir annað hefur Molaskrifari að …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 611

Báðar gerðu sjónvarpsstöðvarnar Grímsvatnagosi góð skil í fréttatímum á sunnudagskvöld (22.05.2011) og verður þar ekki gert upp á milli. Í Ríkissjónvarpinu stóð Landinn að venju fyrir sínu og  svo  fylgdi  ágæt mynd Eggerts Gunnarssonar um flutning sinfóníunnar úr Háskólabíói í Hörpu.  Á stundum er fréttamat Fréttastofu Ríkisútvarpsins svo einkennilegt, að undrun sætir og gamlir fréttamenn …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 610

Eftir því sem við var að búast voru  Grímsvatnagosi gerð ágæt skil í tíufréttum Ríkisútvarps og  aukafréttatíma  Ríkissjónvarps (21.05.2011).Sömuleiðis í morgunfréttum klukkan 0700 daginn eftir. Vefur Ríkisútvarpsins og mbl.is  gerðu málinu  einnig mjög  góð skil snemma á   sunnudagsmorgni. Þá var og mjög vel að verki staðið í  löngum fréttatíma  á Rás eitt milli  klukkan átta …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 609

Magnað og áhrifamikið Kastljós (20.05.2011). Vel gert, Sigmar og Jóhannes.  Vonandi  hefur margt ungt fólk verið í hópi áhorfenda.  Þennan þátt mætti gjarnan endursýna nokkrum sinnum. Úr mbl.is (17.05.2011): Maður sem var að reyna að bjarga hundi sínum lifði af um 60 metra fall niður klett í norðausturhluta Bretlands. Undarlegt orðalag að tala um  fall …

Lesa meira »

Older posts «