Sumarið stendur á sér, stóð skýrum stöfum á skjánum í upphafi fréttatíma Stöðvar tvö (09.06.2011). Heldur er þetta nú rasshandarlegt orðalag að mati Molaskrifara. Betra hefi verið: Sumarið lætur á sér standa. Pressan skrifar um fyllerí verslunarskólastúdenta í útskriftarferð á Spáni. Þar segir: … sagt að ekkert væri hægt að gera til að leysa …