Í sunnudagsblaði Moggans (19.06.2011) fá stjórnendur Ríkissjónvarpsins og Stöðvar tvö verðskuldaða ádrepu frá Agnesi Bragadóttur, blaðamanni, sem kallar grein sína Ljósvaki á gráu svæði. Staðreyndin er auðvitað sú, að sjónvarpsstöðvarar eru ekki bara á gráu svæði, heldur svörtu, þegar þær til dæmis blygðunarlaust auglýsa áfengi. Líka er rétt að minna á að Ríkissjónvarpið auglýsir TAX …