Molavin sendi eftirfarandi: ,,Netmoggi segir í dag, sunnudag, svo frá: „Fimm drukknuðu og fimm er saknað eftir að skemmtibátur sökk í ánni Moskvu í Rússlandi ígærkvöldi. Sjö var bjargað úr vatninu. Moskva rennur gegnum höfuðborg Rússlands.“ Þetta er eins í fyrirsögn fréttarinnar. Hér hefur einhver sumarliðinn þýtt ranglega úr ensku. Moskvuá rennur nefnilega gegn um …
Monthly Archive: júlí 2011
Molar um málfar og miðla 673
Úr dv.is (28.07.2011): Danska drottningarsnekkjan er nú við höfn í Reykjavík og veltu vegfarendur fyrir sér hvort hér væri mætt Margrét Þórhildur Danadrottning … Skip eða snekkja Danadrottningar er ekki við höfn í Reykjavík, eins og dv.is segir. Skipið liggur við bryggju í Reykjavík. Það er í höfn í Reykjavík. Ekki verður annað sagt en …
Molar um málfar og miðla 672
Í fréttum Ríkissjónvarps (29.07.2011) var sagt að formaður Stjórnlagaráðs hefði í dag afhent forseta Íslands frumvarp til nýrrar stjórnarskrár. Í fréttinni sást að það var forseti Alþingis sem tók við plagginu. Forseti Íslands kom ekkert við sögu. Ekki heyrði Molaskrifari að þetta mishermi væri leiðrétt í fréttatímanum. Á vef Ríkissjónvarpsins var hljóðið hinsvegar þurrkað út …
Molar um málfar og miðla 671
Í iðrum kerfisins rumskaði embættismaður eftir sextán ára svefndrunga og sagði: ,,Það er bannað með lögum að baka kökur heima og selja í Sjómannadagskaffi, 1. maíkaffi eða á kirkjubasar til að afla fjár fyrir góðan málstað eins og gert hefur verið í 80 ár.” Hvílíkt rugl! Þetta ku hafa verið í lögum í sextán ár! …
Molar um málfar og miðla 670
Það er undarlegt að Ríkisútvarpið skuli hafa beðið golfáhugamenn afsökunar á því að skynsemin skuli hafa fengið að ráða þegar ákveðið var sl. sunnudag að fella niður beina útsendingu frá golfmóti suður í Leiru en leyfa þjóðinni þess í stað að fylgjast með einstæðum degi í sögu norsku þjóðarinnar í beinni útsendingu. Þetta ber vott …
Molar um málfar og miðla 669
Rétt fyrir tíu fréttir (25.07.2011) var auglýsing í Ríkissjónvarpinu þar sem ungt fólk var hvatt til að nota ekki munntóbak. Gott. Í kjölfar þeirrar auglýsingar komu tvær auglýsingar þar sem hvatt var til bjórdrykkju. Vont. Brot á lögum bann við áfengisauglýsingum. Hverskonar stofnun er þetta Ríkisútvarp orðið? Tekið er að glæðast yfir laxveiði, var sagt …
Molar um málfar og miðla 668
Glöggur lesandi benti á eftirfarandi í dv.is (22.07.2011): Þess að auki tjáði hann sig mikið í færslum hlekkjaðar við sænskar fréttasíður, og segir: Undanfarið hef ég aðeins verið að rekast á þetta: „Þess að auki….“ í stað „þar að auki“.Sjá dæmi neðarlega í þessari frétt: http://www.dv.is/frettir/2011/7/22/grunadur-um-hrydjuverkaaras-i-noregi/ Þetta er líklega í þriðja skiptið sem ég sé …
Molar um málfar og miðla 667
Í fréttatímanum Í Ríkisútvarpinu á miðnætti aðfararnótt sunnudags (24.07.2011) taldi Molaskrifari einar átta ambögur í fréttinni um voðaverkin í Noregi, sem flutt var í upphafi fréttatímans. Þetta var með ólíkindum. Eyjan Útey er til dæmis ekki við Noreg. Hún er í Noregi, nánar tiltekið í stöðuvatninu Tyrifjorden. Talað var um að ofbeldisseggurinn hefði planað árásina, …
Molar um málfar og miðla 666
Var Molaskrifari sá eini sem þótti það undarlegt og ósmekklegt, að Ríkisútvarpið skyldi spila lagið Óla lokbrá sem síðasta lag fyrir fréttir laugardaginn 23. júlí? Þeim Molalesendum, sem senda skrifara athugasemdir um málfar í fjölmiðlum fjölgar ört. Hér fylgja nokkur dæmi frá 22. júlí: Elísabet sendi eftirfarandi: Sagt var í Speglinum (Ríkisútvarpið): Osló er nú …
Molar um málfar og miðla 665
Það voru hárrétt viðbrögð hjá Ríkissjónvarpinu að sýna beint síðdegis á föstudag frá vettvangi hinna skelfilegu atburða í Osló. Það ber að þakka. Frásögn af málinu í fréttatíma var sömuleiðis með ágætum. Ríkissjónvarpið hefði hinsvegar átt að gera meira. Það hefði átt að sýna beint frá blaðamannafundi þeirra Stoltenbergs forsætisráðherra og Storberget dómsmálaráðherra seinna um …