Fréttatími Stöðvar tvö á fimmtudagskvöld (18.08.2011) var mikil ambögusúpa. Stjórnendur fréttastofu Stöðvar tvö ættu að íhuga hvort sumir þeirra fréttamanna , sem þar komu við sögu séu ekki betur til annarra starfa fallnir. Hér skal aðeins minnst á tvær fréttir. Í fyrirsögn á fréttavefnum visir.is segir um frétt Stöðvar tvö um gjafir til kvennadeildar Landspítalans: …