ÞÖRF ÁDREPA Molavin skrifaði (28.05.2015): ,,Netmoggi birtir í dag (28.05.2016) frétt af óhugnanlegri hópnauðgun í Brasilíu. Fréttin er orðrétt tekin upp úr frétt BBC en hefst á þessari undarlegu þýðingu: „Tímabundinn forseti Brasilíu, Michel Temer, hefur kallað öryggisráðherra allra ríkja landsins á neyðarfund…“ Frétt BBC hefst á þessum orðum: „Brazil’s interim President Michel Temer has …
Monthly Archive: maí 2016
Molar um málfar og miðla 1953
GRÍÐARLEGA GRÍÐARLEGUR Molavin skrifaði (27.05.2016): „Hún fer gríðarlega ótroðnar slóðir…“ sagði kona í þættinum Samfélagið á Rás 1. Ofnotkun lýsingarorða gjaldfellir þau og það á ekki sízt við um orðið „gríðarlegur.“ Það er hægt að fara troðnar slóðir – og þá mistroðnar – en ótroðnar slóðir geta varla stigbeygzt . Flugvélin getur verið ókomin en …
Molar um málfar og miðla 1952
FLAK KAFBÁTAR Af mbl.is (25.05.2016): Fundu flak bresks kafbátar, segir í fyrirsögn á mbl.is . Sama villan í fréttatextanum. ,,Kafari fann nýverið flak bresks kafbátar frá árum síðari heimsstyrjaldarinnar við strendur ítölsku eyjarinnar Sardiníu. Kafbáturinn HMS P 311 fórst í janúar 1943 með 71 mann um borð.” Sjá: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/05/25/fundu_flak_bresks_kafbatar/ Gömul saga og ný. Enginn les …
Molar um málfar og miðla 1951
GALLVASKUR FORMAÐUR Molalesandi benti á eftirfarandi frétt á dv.is (22.05.2016) https://www.dv.is/frettir/2016/5/22/sigmundur-er-alls-ekki-haettur-stefnir-aftur-forsaetisraduneytid/ Hann skrifar:,,Í fréttapistli á DV.is í dag er haft eftir Sigmundi Davíð, að Framsóknarflokkurinn „fari gallvaskur í næstu kosningar“. Akkúrat það. Er verið að tala um gall- svona eins og gall-súran – eða gall-aðan. Væntanlega er ekki verið að ræða um galvaskan flokk heldur …
Molar um málfar og miðla 1950
KVENVARA? Sigurður Sigurðarson skrifaði (22.05.2016): ,, Verslunin sem kallar sig „Herralagerinn outlet“ segir meðal annars í heilsíðu auglýsingu í Morgunblaðinu 21. maí 2016: „Mikið úrval af kvenvöru.“ Lesandinn velti því fyrir sér hvort mansalið hafi tekið á sig nýjar myndir hér á landi. „Karlvörur“ eru hins vegar ekki auglýstar. Svo má auðvitað gera athugasemdir við að eigendur …
Molar um málfar og miðla 1949
AÐ VERA STADDUR Sigurður Sigurðarson, sendir Molum oft athyglisverðar ábendingar um það sem betur mætti fara í málfari í fjölmiðlum. Það þakkar Molaskrifari. Sigurður skrifaði (20.05.2016): ,,Þetta var upphaf fréttar sem skrifuð var á mbl.is: Björgunarsveitir voru kallaðar út að Naustahvilft á Ísafirði vegna fótbrotins karlmanns sem þar er staddur. Aumlega saman klúðruð málsgrein. Suma þarf …
Molar um málfar og miðla 1948
TIL SALS ! Sigurður Sigurðarson skrifaði Molum 18.05.2016: „Mistök við sölu Ásmundarsals algjört einsdæmi“, segir í fyrirsögn á visir.is. Þetta heyrðist svo í fréttum Bylgjunnar í dag. Barnið, sem skrifað er fyrir fréttinni, er Þórhildur Þorkelsdóttir. Enginn lagfæring á beygingarvillunni og leið svo dagurinn.” Þakka bréfið, Sigurður. Þetta er allt eftir hætti. Enginn les yfir. Enginn …
Molar um málfar og miðla 1947
ÞAU BLÓMSTRA Þau blómstra fréttabörnin á visir.is. Þeim þarf að leiðbeina. Sigurður Sigurðarson skrifaði (13.05.2016) ,,Sæll, Auðvitað er þetta ekki boðlegt á visir.is , en þegar börnin fara illa með leikföngin þarf að leiðbeina þeim og hlynna að. Á meðan eiga þau ekki að skrifa í fjölmiðla: Guðjón Baldvinsson, framherji Stjörnunnar, skoraði í kvöld næst fljótasta …
Molar um málfar og miðla 1946
Hlé hefur verið á Molaskrifum um skeið. Molaskrifari brá sér af bæ. Tók sér far með ferjunni Norrænu frá Seyðisfirði og heimsótti gamla vini í Færeyjum í fáeina daga. Það var ævintýraferð og góðra vina fundur. Sól og blíða í Færeyjum nær allan tímann, svolítill suddi síðasta daginn, sirm, eins og heimamenn segja. AÐ …
Molar um málfar og miðla 1945
SELDUR – SELDUR TIL JT skrifaði Molum og vitnaði í frétt af vef Ríkisútvarpsins um að Ásmundarsalur hefði verið seldur. Fyrirsögnin var: Ásmundarsalur seldur til fjárfesta. Í fréttinni segir: ,,Ásmundarsalur, hús Listasafns Alþýðusambands Íslands við Freyjugötu, hefur verið seldur til Aðalheiðar Magnúsdóttur og Sigurbjörns Þorkelssonar. Sigurbjörn Þorkelsson er fjárfestir og stjórnarformaður Fossa markaða, verðbréfamiðlunar.” JT …