«

»

Molar um málfar og miðla 1477

Stórfrétt, afar ítarleg, um rottuveiðar á Melhaganum í Reykjavík var í síðdegisfréttum Ríkisútvarpsins klukkan 16 00 á fimmtudag (22.05.2014). Tveir strákar höfðu veitt rottu. Hún beit annan þeirra í fingur. Hann fór á slysadeild. Í fréttinni segir: ,, Kolbeinn Egill komst ekki óskaddaður frá leitinni að rottunni – hún beit hann í puttann og er Kolbeinn í þessum töluðu orðum á slysadeild Landspítalans þar sem hann bíður eftir því að gert verði að sári hans”. Strákarnir voru nafngreindir svo og móðir annars þeirra. Fréttamatið í Efstaleitinu lætur ekki að sér hæða. http://www.ruv.is/frett/bitinn-af-rottu-i-vesturbae-reykjavikur

 

Ég treysti biskup, sagði Hanna Birna Kristjánsdóttir, innanríkisráðherra, í Kastljósi á fimmtudagskvöld (22.05.2014). Tvisvar. Ég treysti biskupi, hefði það átt að vera.

 

Hvað skyldi hið oft fremur ógeðfellda Hraðfréttarugl Ríkissjónvarpsins kosta margar milljónir á ári? Um það hefur áður verið spurt, en Ríkissjónvarpið skuldar áhorfendum víst hvorki svör við einu eða neinu. Áhorfendur eiga bara að borga og þegja. Ekki spyrja.

 

Alltaf er maður að læra eitthvað nýtt. Af mbl.is (22.05.2014) : ,,Starf rún­ings­manns krefst fé­lags­legr­ar hæfni og tilþrif­in hafa heillað marga kon­una í gegn­um tíðina”. Sjá:. http://www.mbl.is/frettir/innlent/2014/05/22/lagni_skiptir_mali_i_runingi/

 

Það leynir sér ekki að kosningaskjálftinn hefur heltekið Mogga þegar blaðið gerir  úr því þriggja dálka frétt (23.05.2014) hvort verið geti að Dagur B. Eggertsson, sem stundum hleypur í skarðið fyrir borgarstjóra, fái afnot af bíl borgarstjóra, þegar hann sinnir embættisskyldum borgarstjóra! http://www.mbl.is/frettir/kosning/2014/05/23/stadgengill_borgarstjora_hefur_afnot_af_bil_hans/

Flest er hey í harðindum. Hér er gripið í hálmstrá. En nú stefnir reyndar í verstu útkomu Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík frá stofnun flokksins.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>