Íþróttadeild Ríkissjónvarpsins heldur áfram að beita ofbeldi í dagskránni. Í gærkveldi (24.06.2014)var fótboltaleik lokið klukkan 21 55. Tíufréttir hefðu átt og hefðu getað hafist klukkan 22 00. Nei. Þá tók við innihaldslaust tuðrutuð í 20 mínútur og vel Það það með löngum auglýsingum. Tilgangur tuðsins sá einn að segja fólki hvað því ætti að finnast um leikinn. Þetta gerðist líka kvöldið áður. Fréttunum ýtt til hliðar. Vond vinnubrögð. Allt er gert til að þóknast háværum elskendum boltans. Við hin skiptum ekki máli. Hvar er nú nýr fréttastjóri? Lætur hann bjóða sér að fréttatíminn sé eilíf hornkerling þegar fótboltinn er annarsvegar ? Hefur enginn metnað fyrir hönd fréttastofunnar? Er þetta gert með blessun útvarpsstjóra? Valtar íþróttadeildin yfir hann? Stundum finnst Molaskrifara að stjórnendur íþróttadeildar séu eins og frekir krakkar við ,,nammibar” eða slægætishillurekkana í stórmarkaði. Foreldrarnir gefast yfirleitt upp fyrir frekjunni og hávaðanum. Stjórnendur Ríkisútvarpsins virðast hafa gefist upp gagnvart frekju íþróttadeildar.
Ingólfur Arnarson benti Molaskrifara á fréttabarnsfrétt á mbl.is (21.06.2014). Hann segir: Svona til gamans, fréttabörn að störfum.
Hraðskreiður eltingaleikur við lögreglu?? Klesst á??
Fyrirsögn: 17 ára ökuþór handsamaður Úr fréttinni:
,,Audi – Hin stolna bifreið var af Audi gerð og olli gríðarlegum skarkala (undir mynd)
Eftir hraðskreiðan eltingaleik við lögreglu var 17 ára ökuþór, sem stal bíl í Genf og olli fjölmörgum umferðarslysum, handsamaður á miðvikudag.
Bílstjórinn sem um ræðir er búsettur í Frakklandi en er færeyskur að uppruna. Lögregluyfirvöld voru fyrst látin vita af glæpnum þegar Audi bíll sást aka á móti umferð nálægt borginni Saint-Prex í Sviss.
Eftirför lögreglu náði þegar mest lét 200 kílómetra hraða og Audi bíllinn umræddi klessti á fimm aðrar bifreiðar áður en loksins tókst að stöðva hann”. http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/06/21/17_ara_okuthor_handsamadur/
Um helgar leika fréttabörnin víða lausum hala.
Það er eitt og annað við þessa frétt af vef Ríkisútvarpsis (21.06.2014) að athuga: http://www.ruv.is/frett/astum-tonleikagesti-vikid-ut-af-messiasi
Í fyrsta lagi er það fyrirsögnin: Æstum tónleikagesti vikið út af Messíasi. Hann var rekinn út af tónleikum. Í fréttinni segir: Bandarískum efnafræðingi var vikið út af flutningi á óratoríunni Messíasi… Þar segir ennfremur: David Glowacki, sérfræðingur í sameindaefnafræði við Stanford-háskóla, virðist þó hafa tekið hvatninguna lengra en tónleikahaldarar áttu von á.
–Tekið hvatninguna lengra? Við hvað er átt?
Í fréttum Stöðvar tvö (23.06.2014) var sagt frá fréttamönnum sjónvarpsstöðvarinnar Al Jazeera sem hlutu fangelsisdóma fyrir að flytja falskar fréttir eins og það var orðað. Ekki finnst Molaskrifara það vel orðað. Í fréttum Ríkissjónvarps var talað um þeir hefðu verið dæmdir fyrir rangfærslur og hlutdrægni. Skýrara og betra orðalag.
Undarlegt þótti Molaskrifara hinsvegar hve lítið bandaríska stöðin CNBC hefur gert með þennan dóm í þeim fréttum hennar sem hér er hægt að sjá.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
25/06/2014 at 16:08 (UTC 0)
Sammála.
Eirný Vals skrifar:
25/06/2014 at 13:23 (UTC 0)
Sæll Eiður,
Hálf finnst mér þetta skrítið
,,Franskur læknir, sem endaði líf sjö ….“
http://www.mbl.is/frettir/erlent/2014/06/25/ekki_mord_heldur_loglegt_liknardrap/
Það væri hægt að segja, og skrifa, batt enda á líf ….
en endaði líf finnst mér ambaga.
Kveðja,
Eirný