«

»

Molar um málfar og miðla 1585

Úr forsíðufrétt í Fréttablaðinu (01.10.2014):,, Allar líkur eru á að ný stjórnsýslustofnun sem á að taka yfir málefni Barnaverndarstofu, Fjölmenningarseturs, réttargæslumanna fatlaðs fólks auk verkefna sem félagsmálaráðuneytið sinnir, verði komið fyrir á landsbyggðinni”. Sá sem þessa setningu skrifaði mundi ekki hvaðan hann fór, þegar komið var á leiðarenda. Ný stofnun verður ekki komið fyrir. Nýrri stofnun verður komið fyrir. Ástæðulaust er að tala um að taka yfir málefni. Betra væri að segja að taka við verkefnum. Svo er líka óþarfi að tala um að koma stofnun fyrir úti á landi. Ráðgert er að stofnunin verði úti á landi.

 

Ríkissjónvarpið þarf að ákveða hvað garðyrkjuþættirnir, sem nú (01.10.2014) er verið að sýna, heita. Þættirnir heita ýmist,- Í garðinum með Gurrý eða Í garðinum hjá Gurrý. Niðursoðna konuröddin,sem kynnir dagskrána, segir eitt. Í skjátexta stendur annað. Þetta eru ekki vönduð vinnubrögð.

 

Það verður hver að eiga það sem hann á, eins og þar stendur. Dagskrá Ríkissjónvarpsins hefur farið batnandi að undanförnu. Hver bitastæða heimildamyndin á fætur annarri og kvikmyndavalið stórum betra en var þegar botninn virtist skafinn og dreggjar einar bornar fyrir okkur. Sem sagt á réttri leið og vonandi verður þar framhald á. Nú þurfa stjórnendur í Efstaleiti bara að brjóta odd af oflæti sínu og færa siðasta lag fyrir fréttir á sinn stað og endurskoða þær ákvarðanir aðrar, eins og varpa Sagnaslóð fyrir róða, sem mest hafa verið gagnrýndar. Þeir verða ekkert minni menn af því að hlusta á hlustendur/horfendur. Það er reyndar þeirra hlutverk.

 

Í morgun (03.10.2014) var standard slettunni sleppt í Ríkisútvarpinu rétt fyrir klukkan sjö, á undan fréttum. Vonandi verður svo framvegis. Þess í stað var talað um lífseigt lag. Gott. Það er fínt orðalag.

Hversvegna þarf stórverslunin Hagkaup að hefja auglýsingu,sem beint er til okkar, með enskri upphrópun: Oh My God? Og nota svo slettuna tax-free í auglýsingunni, – til að kóróna þetta? Hver er tilgangurinn? Er auglýsingadeild Ríkisútvarpsins fyrirmunað að fara eftir þeim reglum að auglýsingar í Ríkisútvarpinu skuli vera á íslensku

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>