«

»

Molar um málfar og miðla 1687

 

Höggdofa horfði Molaskrifari á Kastljós Ríkissjónvarpsins í gærkvöldi (03.03.2015). Og var örugglega ekki einn um það. Fátt, ef nokkuð, er svívirðilegra, en að vekja falsvonir hjá dauðvona fólki og hafa það að féþúfu. Þetta var sannast sagna óhugnanlegt. Takk Jóhannes Kr. Kristjánsson og allir sem þarna komu við sögu. Sennilega fer viðskiptavinum Sjónarhóls í Hafnarfirði ekki fjölgandi á næstunni og varla hefur traustið aukist á Heilsutorgi Blómavals. Reynt var að stöðva sýningu þáttarins með lögbanni. Sýslumaðurinn í Reykjavík féllst ekki á það. Það var auðvitað frétt, – nema hjá Stöð tvö, Molaskrifari heyrði þess ekki getið í fréttum þar á bæ.

Að segja frá misindisfólki, sem stundar starfsemi af þessu tagi, er þjónusta við þjóðina.

 

Kaupmenn blekki neytendur. Þetta stóð um hríð á skjá Ríkissjónvarpsins í upphafi frétta á sunnudagskvöld (01.03.2015). Þetta var ekki hvatning til kaupmanna að blekkja neytendur, þótt sú sé orðanna hljóðan. Það var verið að vitna til ummæla um að kaupmenn blekktu neytendur. Sá sem samdi þessa skjáborðafyrirsögn þarf að lesa upp og læra betur, – íslenska málfræði.

Verslunin taki of mikið til sín er samkynja fyrirsögn á fréttavef Ríkisútvarpsins (01.03.2015) http://www.ruv.is/frett/verslunin-taki-of-mikid-til-sin

Verkefni fyrir málfarsráðunaut.

 

Þættir Önnu Sigríðar Þráinsdóttur Orð af orði (síðasti þáttur var endurfluttur á mánudagskvöld 02.03.2015) ættu að vera skylduhlustun fyrir fjölmiðlafólk. Þátturinn er skemmtilega uppbyggður og fræðandi. Fínn þáttur.

Orðtakið að leiða ágreining í jörð sem gert var að umtalsefni í síðasta þætti og þingmenn Sjálfstæðisflokksins virðast einir um að nota, er eiginlega bull að mati Molaskrifara. Ekki er þetta gagnsætt og hver er hugsunin? Leiða ágreining í jörð! Þingmennirnir virðast éta þetta upp hugsunarlaust hver eftir öðrum

Minnir Molaskrifara á, að fyrir margt löngu átti Ólafur Jóhannesson forsætisráðherra það til að flytja áherslu af fyrsta atkvæði orðs á annað eða þriðja atkvæði. Fyrr en varði voru fleiri þingmenn Framsóknarflokksins farnir að gera þetta líka. Á fréttastofu Sjónvarpsins töluðum við í gríni um forsætisráðherraframburðinn!

 

Af mbl.is (01.03.2015): Frétta­stofa AFP hef­ur beðist af­sök­un­ar á því að hafa sagt franska millj­arðamær­ing­inn Mart­in Bouygu­es, lát­inn en þær fregn­ir munu hafa verið stór­lega ýkt­ar. – http://www.mbl.is/frettir/erlent/2015/03/01/ekki_latinn_eftir_allt/

Er Netmoggi að reyna að vera fyndinn með vísan til frægra ummæla Mark Twains? http://www.brainyquote.com/quotes/quotes/m/marktwain141773.html

Kannski var þetta bara óviljandi?

Mogginn á það nefnilega til að vera  mjög fyndinn,  stundum alveg óviljandi.

 

Fréttastjóra Ríkissjónvarpsins þótti greinilega ekki taka því að biðja okkur áhorfendur afsökunar í gærkveldi (03.03.2015) á því að seinni fréttir hófust meira en fimm mínútum of seint miðað við auglýstan tíma.

Kurteisi kostar ekki neitt.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Kristján skrifar:

    Hallldór Ásgrímsson tók upp forsætisráðherraframburð Óla Jó. ekki satt ? Höskuldur, Framsóknarþingmaður, er stundum að rembast við þennan framburð, árið 2015 !

    Það er mjög athyglisvert að sjá og heyra menn breytast í þá sem þeir líta upp til. Bjarni Ben. tók upp málfar og svipbrigði Geirs Haarde. Utanríkisráðherrann er að reyna að tala eins og Davíð Oddsson, en hefur ekki orðaforða í það.

    Sjálfstæðiskonurnar, Ragnheiður Elín, Þorgerður Katrín, Hanna Birna ofl. hljóma nánast eins og sama manneskjan.

    Minnir á kvikmynd Woody Allen um Zelig.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>