«

»

Molar um málfar og miðla 1854

FALLAFÆLNI

Stundum er eins og fréttaskrifarar séu hræddir við fallbeygingar. Fallafælnir.  Í hádegisfréttum Bylgjunnar á Þorláksmessu (23.12.2015) var sagt ,, …vegna innlimun þeirra á Krímskaga …” Vegna innlimunar hefði þetta átt að vera.

Annað dæmi úr fréttum Ríkisútvarpsins (26.12.2015) ,, …. þá var Melissa Chan fréttamaður Al jazeera gert að fara úr landi.”Sama sagan. Fréttamanni var gert að fara úr landi.

 

UNDARLEGT FRÉTTAMAT

Stundum verður gamall fréttamaður hissa á fréttamati fréttastofu Ríkisútvarpsins. Til dæmis  á sunnudagskvöld, þriðja í jólum (27.12.2015). Þá var fyrsta frétt bæði í útvarpi og sjónvarpi um mygluskemmdir í blokkaríbúð á ótilteknum stað í Reykjavík. Viðtal fylgdi við lögmann, sem á hlut á máli. Fyrr má nú vera fréttaleysið, ef þetta var talið þess virði að vera á oddinum bæði í útvarpi og sjónvarpi. Hvað réði þessu undarlega mat?

 

EFTIRMÁL – EFTIRMÁLI

Oft hefur verið að því vikið hér hvernig menn rugla saman eftirmála,stuttum kafla í lok bókar, skýringu, og eftirmálum, afleiðingum einhvers. Ísama fréttatíma Bylgjunnar og vitnað var til hér að ofan var sagt á þessa leið: ,, Þannig að þú heldur þá að eftirmáli þessa máls sé alls ekki lokið”. Betra hefði verið: ,, Þannig að þú heldur að eftirmálum þessa máls sé alls ekki lokið”. Afleiðingar ekki að fullu komnar í ljós. Málið ekki til lykta leitt.

 

HVER SKILUR ÞETTA?

Úr frétt á mbl.is(23.12.2015): ,,Sam­kvæmt upp­lýs­ing­um frá slökkviliðinu voru tveir sjúkra­bíl­ar send­ir á staðinn, en flutn­inga­bíll bíl­stjóra og einn farþega lenti á hand­riði. “

Skilur einhver þetta?

 

 

 

 

 

HUGVEKJA

Í morgunþætti Rásar tvö (24.12.2015) var sagt frá því að Andri Snær Magnason rithöfundur hefði haldið hugvekju á útisamkomu. Við tölum um að flytja hugvekju, ekki halda hugvekju. Halda ræðu, flytja ræðu, flytja fyrirlestur. Ekki satt?

 

GRODDALEGT

Fjórar ágengar og groddalegar auglýsingar (svo kallaðar leiknar auglýsingar)  frá Lottóinu voru fluttar rétt f yrir hádegisfréttir í Ríkisútvarpinu á jóladag (25.012.2015). Er ekki snefill af smekkvísi til staðar, hvorki hjá auglýsingadeild Ríkisútvarpsins eða hjá hinu ríkiseinkaleyfisrekna Lottói? Er þar enginn sem kann sig? Eru engin grið gefin? Ekki einu sinni á jóladag? Þarf líka að garga á okkur á jóladag? Stakk í stúf við annað á Rás eitt á jóladag.

Þessar frekjulegu auglýsingar Lottósins dundu reyndar á okkur á undan og eftir fleiri fréttatímum í Ríkisútvarpinu á jóladag.

 

TIL LESENDA

Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.

 

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>