VANDRÆÐALEGUR VIÐTENGINGARHÁTTUR
Sumir eiga sífellt í erfiðleikum með að nota viðtengingarhátt rétt. Dæmi um þetta var í fyrirsögn á mbl.is (23.06.2016): Fóstureyðingum fjölgi um 108% Eins og verið verið að hvetja til þess að fjölga fóstureyðingum um 108%.: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/06/23/fostureydingum_fjolgi_um_108_prosent/
Svo var þó auðvitað ekki, en þetta var síðar lagfært. Villur af þessu tagi sjást of oft. Það er því miður allt of algengt að óyfirlesnar, óleiðréttar, fréttir séu birtar okkur á netmiðlum. Það er eins og netmiðlana skorti metnað til að sýna íslenskri tungu þann sóma, sem hún verðskuldar.
AÐ SKEMMTA SÉR
Nú er eins og allir séu hættir að skemmta sér, – að minnsta kosti heyrist það, orðalag ákaflega sjaldan í fjölmiðlum. Nú heitir það að skemmta sér að hafa gaman. Þetta eru auðvitað bein áhrif úr ensku, – to have fun, – að skemmta sér.
ENN OG AFTUR
Aftur og aftur hnjóta lesendur um samkynja villur í netmiðlunum. Af mbl.is (23.06.2016): ,,Fram kemur í frétt AFP að upptaka af samtalinu hafi verið lekið til fjölmiðla en þar ræði ráðherrann við embættismann í Katalóníu-héraði ….” Upptaka af samtalinu var ekki til fjölmiðla. Upptöku af samtalinu var lekið til fjölmiðla … Sjá: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2016/06/22/vilja_ad_radherrann_segi_af_ser/
FRÁ BYKO
Nú býður byggingavöruverslunin BYKO okkur í auglýsingum að versla byggingavörur í BYKO. Auglýsingastofu,sem semur svona auglýsingu, er ekki við bjargandi. Sumir kaupa byggingavörur í BYKO, en það verslar enginn byggingavörur í BYKO.
BYKO verslar með byggingavörur. Þetta er ekkert flókið.
AÐ SKIRIFA Á ÍSLENSKU
Eftirfarandi setning er úr laxveiðifrétt á visir.is (23.06.2016): ,,Aðstæður voru hinar bestu í morgun og voru veiðimenn jafnvel að spreyta sig á að hitcha suma staðina með góðum árangri en það er taktík sem ekki er notuð mikið svona á fyrsta degi”. Molaskrifrari er ekki veiðimaður. Hann skilur þetta ekki og er þess fullviss að sama gildir um marga aðra lesendur. Sjá: http://www.visir.is/algjor-mokveidi-vid-opnun-ytri-rangar/article/2016160629453
ÍSLENDINGAR
Mjög góður Íslendingaþáttur Ríkissjónvarps um Steingrím Hermannson, var sýndur á miðvikudagskvöld (22.06.2016). Andrési Indriðasyni er einstaklega lagið að setja saman sjónvarpsefni úr gullkistu Ríkisútvarpsins. Þekkir til enda starfað þar í hálfa öld. Molaskrifari hafði vegna starfa erlendis ekki séð nema hluta af því efni,sem sýnt var í þættinum. Á þingmennskuárunum átti hann ævinlega gott samstarf við Steingrím Hermannsson, hvort sem var í stjórn eða stjórnarandstöðu. Steingrímur var hreint ekki óumdeildur frekar en aðrir aðsópsmiklir stjórnmálamenn. Forysta Framsóknarflokksins í dag gæti ýmislegt af verkum Steingríms og stefnu lært.
TIL LESENDA
Þeir lesendur, sem vilja senda mér tölvupóst eru beðnir að nota póstfangið eidurgudnason@gmail.com .Eða einkaskilaboð á fésbók.
Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.
Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG
Skildu eftir svar