Úr Vefvísi (24.10.209): Betur fór en á horfðist þegar fólkbíll velti ofan í djúpan skurð á Suðurlandsvegi og hafnaði á hvolfi, Hverju velti fólksbíllinn? Velta ,velti,valt, ultum oltið.Hverju velti fólkbíllinn ofan í læk ? Hvað segja Molalesendur um eftirfarandi úr Vefmogga (2. 4.10.2009): Bandarískur karlmaður komst í kast við lögin á mánudag þegar hann hellti upp á kaffi heima hjá sér nakinn. Hann á von á því að verða kærður fyrir að afhjúpa sig með ósæmilegum hætti. Molaskrifari er vanur því að heyra talað um að hella upp á könnuna,eða hella upp á en ekki hella upp á kaffi.Og að afhjúpa sig með ósæmilegum hætti, er ekki gott mál. Á haustin er það einkum sjóbirtingur sem heillar stangveiðimanna… var sagt í hádegisfréttum RÚV ( (25.20.2009) Sögnina að heilla tekur ekki með sér eignarfall heldur þolfall. … sjóbirtingurinn heillar stangveiðimenn. Enn ein aula villan í RÚV. Leikurinn verður spilaður í Frakklandi .. var sagt í íþróttafréttum RÚV. Af hverju ekki: Leikurinn fer fram í Frakklandi. Að spila leik, er ekki gott mál.Í háhegisfréttum RúV ( 25,10. var talað um um píanósnillinginn Glenn Gould, Sem ítreakað var kallaðir Glenn Gold. Þetta minnar á þegar þula sjónmvarpsins talaði hvað efiri anað um tónskáldið Richard WOOOgner.
10 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Steini Briem skrifar:
30/10/2009 at 20:33 (UTC 0)
Ekkert að afsaka, Eiður minn.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
30/10/2009 at 16:27 (UTC 0)
Alltaf er gott að heyra að einhver saknar manns. Þetta kemur að kalda vatninu.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
30/10/2009 at 16:19 (UTC 0)
Ekki leiður og ekki reiður, tölvan hefur verið að hrella mig.
Ég skammast mín niður í tær fyrir þessar tvær línur. Vil helst ekki leiða hugann að þeim. Þetta hefur einu sinni komið fyrir mig áður. Ein fimm ár síðan. Var þá búinn að vista vitleysuna þegar ég sá þetta. Afsakið hroðvirknina. Von að þetta verði fyrirgefið.
Steini Briem skrifar:
30/10/2009 at 14:55 (UTC 0)
Ekki vera leiður, Eiður!
Haukur Kristinsson skrifar:
29/10/2009 at 11:48 (UTC 0)
Ég er örugglega ekki sá eini sem er farinn að sakna Molanna hans Eiðs.
Lilja skrifar:
27/10/2009 at 17:59 (UTC 0)
Þar fór í verra minn ágæti Eiður! Vonandi er þetta blogghlé ekki vegna minna athugasemda. Ég mun sakna molanna þinna – og það segi ég og skrifa af heilum hug. Hef lesið þá frá upphafi og haft bæði gaman og gagn af.
Eiður Svanberg Guðnason skrifar:
27/10/2009 at 11:32 (UTC 0)
Ágæta Lilja. – þetta eru innsláttarvillur, – hroðvirkni og afleiðing af tveggja fingra innslætti. Gleymdi líka að láta Púkann lesa þetta. Í stuttu máli: Ég hef enga afsökun utan eigin aulaskap, – og geri nú blogghlé um sinn ! Þakka þér vel meintar ábendingar. K kv Eiður
Haukur Kristinsson skrifar:
26/10/2009 at 22:27 (UTC 0)
Lilja…..þetta eru ekki stafsetningarvillur, þetta eru innsláttarvillur.
Einnig fráganginn skal vanda, en hefur ekkert með stafsetningu að gera.
Lilja skrifar:
26/10/2009 at 21:01 (UTC 0)
Ágæti Eiður. Góðar ábendingar í þessum pistli eins og mörgum öðrum sem frá þér hafa komið. Mér brá þó nokkuð í brún við að lesa niðurlagið. Þar tekst þér að hafa á annan tug stafsetningarvilla í síðustu setningunni. Í mínum huga er rétt stafsetning hluti af okkar ágæta máli.
Steini Briem skrifar:
26/10/2009 at 16:59 (UTC 0)
Hann við lögin komst í kast,
kynlegt allt þar tvist og bast,
er kallinn upp á könnu hellti,
og kynfærum í gluggann skellti.