«

»

Löghlýðin þjóð ?

 Auðvitað erum  við Íslendingar löghlýðin þjóð. Það væri nú annaðhvort. En við erum líka  býsna slyng að  fara  í kringum lögin,  þegar okkur ekki líkar  efni laganna. Það er bannað að auglýsa áfengi.  Daglega   dynja á okkur bæði í blöðum og sjónvarpi bjórauglýsingar með tælandi  texta og myndum sem  lofa ágæti bjórs.Okkar fremsti leikari  les  textann,sem eykur enn áhrifin.  En  til þess að allir viti að ekki verið er að  auglýsa áfengan  bjór  birtist orðið “léttöl” í  2 eða  3 sekúndur  með örsmáu letri  í einu skjáhorninu.  Löglegt? Efamál. Það er líka bannað  að setja upp auglýsingaskilti  við þjóðvegi landsins.  Fyrirtæki  fara í kringum þetta bann með því að leggja   merktum  bílum   sínum með máluðum  auglýsingaskiltum á hliðum við  fjölförnustu þjóðvegi  til og  frá  höfuðborginni og  raunar  víðar. Löglegt? Efamál. Það er líka bannað að tala í síma í akstri. Það er ekkert  hægt að fara í kring um það. Ótrúlega margir  ökumenn láta samt  eins og þetta lagaboð,þessi mikilvæga öryggisregla  eigi  ekki við í þeirra tilviki og  blaðra í bílsíma með hálfan huga  við aksturinn. Nú er til ágætis handfrjáls búnaður sem ekkert  er að því að nota  og ýmsir   vissulega  notfæra sér. En það er svolítið sérkennilegt að horfa á menn  og konur  aka  um götur borgarinnar   16 milljón króna  jeppum  sem   greinilega haf ekki haft ráð á því að kaupa  handfrjálsan búnað. Lögreglan er of lin við að taka á þessum lögbrotum.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>