Nútíðar-nafnháttarsýkin fer eins og eldur í sinu um málheim íslenskrar tungu. Úr ræðustóli Alþingis var sagt í dag: „Ég finn að skólarnir eru að standa sig vel“. „Hver er að gleyma peysunni sinni?“ , sagði starfsmaður við gegnumlýsingarvélina í flugafgreiðslunni á Reykjavíkurflugvelli á þriðjudaginn, þegar einhver hafði skilið eftir treyju á færibandinu.
Hvað má til varnar verða? Þeim sem vilja láta reka á reiðanum um þróun tungunnar finnst þetta kannski í lagi. Mér finnst það ekki og vona að ég sé ekki einn um þá skoðun.
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
Haraldur Bjarnason skrifar:
22/05/2008 at 17:26 (UTC 1)
Þörf áminning.