«

»

Hissa

Svolítið  varð ég hissa,  eins og sjálfsagt fleiri lesendur Morgunblaðsins þegar þingfréttamaður  blaðsins lýsti eindregnum persónulegum skoðunum sínum á    stefnu  ríkisstjórnarinnar í varnarmálum  og  gæslu loftrýmis Íslands. Björn Bjarnason dómsmálaráðherra  ræddi þessi sérstæðu   skrif og  sagði mjög svo réttilega, að fréttamaðurinn væri að efna  til  ritdeilu við  nýjan ritstjóra Morgunblaðsins.

Þingfréttamaðurinn   gefur Birni  svo olnbogaskot í  grein í  Morgunblaðinu í dag og   segir: “ Dómsmálaráðherra , sem annars svarar helst ekki spurningum  fjölmiðla  öðruvísi  en í  tölvupósti…..“  Og  nú  spyr  gamall  blaðamaður:  Er eitthvað  einkennilegt við það að  svara  spurningum blaðamanna í tölvupósti?  Er það ekki bara til  fyrirmyndar ? Þá  fer ekkert á milli mála. Þá er ekki spurning um   rangt sé  eftir haft.

Það var ekki  alltaf  auðvelt að ná  til  ráðherra  hér á árum áður. örugglega er það margfalt  erfiðara í dag.

Mér  finnst þetta  vinnulag   dómsmálaráðherra vera til  fyrirmyndar  og veit  reyndar að hann er einn af  fáum sem nær  ævinlega  svarar tölvupósti samdægurs. Það er líka  til  fyrirmyndar.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>