«

»

Molar um málfar og miðla CLVI

 Munir úr Pourquoi pas? ráku á land,  sagði fréttamaður RÚV í  sjónvarpsfréttum  (22.09.2009). Hann hefði átt að  segja: Muni úr  Pourquoi pas? rak á land. Ambögudeildin á  fréttastofunni er í vexti.  En hvernig má það annars ver að erlent skip  skuli geta verið  nánast uppi í landsteinum vestur við Mýrar líkast til í nokkra  daga án þess að yfirvöld á Íslandi  rumski og  athugi hvað  er á seyði?

Alþingismaður skrifar í Fésbókina (21.09.2009): Annasöm vika framundan – fundur í viðskiptanefnd í morgun og svo reka þeir sig fundirnir alla vikuna.  Ekki kannast Molaskrifari við þetta orðlag. Betra hefði verið að segja: Svo  rekur  hver  fundurinn annan alla vikuna, –  löng fundaröð   framundan.

Makalaust er að lesa  frásögn DV  af reiða útlendingnum, sem plataður var til Íslands og  sagt að hann ætti hæsta tilboð í Moggann. Neðri máttarvöld tóku í taumana og komu í veg fyrir að  hagstæðasta  tilboði væri  tekið. Byrðum var velt  yfir á skattþegna  landsins með milljarðaafskriftum lána hins raunverulega gjaldþrota Árvakurs. Góssið  afhent  sægreifum á  silfurfati. Spillingin virðist takmarkalaus.Við höfum oft  talað um kosti  smæðarinnar , en  smæðin og nálægðin  eru eldsneyti spillingarbálsins.   Það verður fróðlegt að  fylgjast með framhaldinu.

Í DV (22.09.2009) er haft eftir  viðmælanda  blaðsins:  Ef  við stöndum saman getum við kvatt niður hvaða  vitleysu sem er.  Hér  er   ruglað  saman sögnunum að kveða og kveðja. Hér  hefði átt að  standa: … getum við kveðið niður… Sögnin að kveðja  beygist : kveðja, kvaddi, kvöddum, kvatt. Illu heilli  hefur hann nú kvatt okkur  fyrir  fullt og allt.

Um helgina festust sjö  fullir  strákar í lyftu. Sagt var frá  þessu í blöðum. Talað  var um að  piltarnir   hefðu verið í  annarlegu ástandi.  Á einum  stað , gott ef það  var ekki í Vefmogga var sagt:  Festust  fullir í lyftu. Það á að kalla  hlutina  réttum nöfnum.

Svolítil  viðbót um  staðanöfn. Í Morgunblaðinu (22.09.2009) er  sagt að Leiran sé  rétt fyrir utan Garðinn. Fyrir utan  Garðinn er  Garðskagaflös og úthafið. Leiran er  auðvitað  fyrir innan Garðinn. Í Garðinum segjum  við inn í Leiru og Keflvíkingar fara  út í Garð. Í Garðinum  skildu  allir  hvað það var  að fara inneftir, – það var að fara til Reykjavíkur. Úr Reykjavík fóru  menn suður í Garð þótt  farið  væri í hávestur. Þetta hefur verið nefnt  hér áður.

Það var fallegt á Garðskaga í dag, blankalogn og blíða. Sjórinn eins og spegill. Mér  fannst hinsvegar ekki tiltakanlega fallegt  að sjá  snurvoðarbát á  stærð  við lítinn  skuttogara skammt undan landi. Mér var sagt að hann væri næstum  eins breiður og hann  væri langur. Veiðileyfið miðaðist nefnilega  við lengd. Í gamla  daga var það þannig að þegar snurvoðarbátarnir komu  gátu allir hætt að  róa. Líklega er það  þannig enn.

3 athugasemdir

Ekkert ping ennþá

  1. Predikarinn - Cacoethes scribendi skrifar:

    Sæll Eiður. Þetta með Árvakur. Heimildamaður minn, sem stöðu sinnar vegna er líklegur til að hafa réttar upplýsingar, hefur tjáð mér að skuld Árvakurs hafi verið svokallað endurlán frá útlöndum. Hinir erlendu kröfuhafar munu hafa afskrifað stærstan hluta lánsins sem gerir það að verkum að Íslandsbanki mun ekki hafa tapað sjálfur á sölu þessa fyrirtækis til hæstbjóðanda.

  2. Haukur Kristinsson skrifar:

    Eiður lýsir sléttum sjó með því að segja hann eins og spegil. Þetta er þekkt orðatiltæki á íslensku, en gæti verið komið úr þýsku; Das Meer ist flach wie ein Spiegel. Gaman að geta þess að Grikkir segja hafið eins og olíu (laði), ef ekki sést bára á vatni.

    En olífu olían er í miklum metum hjá þeirri þjóð. Ekki segja Íslendingar um lygnan sjó, að sé eins og lýsi.

  3. Steini Briem skrifar:

    Fréttabréf Davíðs Oddssonar með heimsendingarþjónustu. Kaupi þeir sem kaupa vilja.

    Undirritaður átti tengdamóður á Húsavík og í hverri viku fékk hún matvæli send heim úr Kaupfélaginu.

    Eitt sinn er ég var í heimsókn hjá þeim heiðurshjónum heyri ég frúna kalla niður í ljósmyndastofuna:

    Pétur! Heimsendirinn er kominn!“

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>