Það er til marks um algjöra veruleikafirringu dagskrárstjóra Ríkissjónvarpsins,að þeir skuli halda að þjóðin vilji þátt eins og Popppúnkt í meira en klukkutíma klukkan rúmlega hálf átta á laugardagskvöldum. Þetta er besti sjónvarpstími vikunnar. Þennan þátt ætti að sýna klukkan hálf átta á mánudagsmorgnum. Lifi nauðungaráskriftin. Það skal í það. Í kjölfar poppþáttarins kemur svo unglingaefni sem unglingarnir í minni fjölskyldu , að minnsta kosti ,hafa ekki minnsta áhuga á.
Úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (21.08.2010): .. í verklagsreglum Vestiu eignarhaldsfélagi Landsbankans. Hefði átt að vera …í verklagsreglum eignarhaldsfélags Landsbankans. Fréttamaður sagði: Menntaskólinn á Tröllaskaga er til húsa í gamla gagnfræðaskólahúsinu í Ólafsfirði,sem hefur gengið í gegnum töluverður endurbætur að undanförnu. Nýr skólameistara sagði: … það væri verið að auka fjárveitingar þar inn, og … á Eyjafjarðarsvæðinu njótum við þess að skólinn er að koma inn. Á mbl.is er haft eftir sama skólameistara: : „Við förum að sjá unga fólkið meira heimavið og menntunarstigið eykst. Samvirkni milli menntastofnunar og samfélagsins skiptir máli,“ . Ekki finnst Molaskrifara þetta lofa góðu. Ef hann ætti heima á Tröllaskaga mundi hann sennilega senda börn sín í MA.
Úr íþróttafréttum Ríkisútvarpsins í hádeginu (21.08.2010): Leikurinn,sem fram fór í gærkvöld, lauk með fjögurra marka sigri Póllands. Hér hefði íþróttafréttamaður auðvitað átt að segja: Leiknum, sem fram fór í gærkvöld, lauk með fjögurra marka sigri Póllands. Eða: leiknum í gærkveldi lauk með fjögurra marka sigri Póllands. Leikurinn lauk ekki. Líklega ætti Ríkisútvarpið frekar átt að ráða handritalesara ,en málfarsráðunaut.
Hversvegna þurfa ágæt íslensk byggðarlög að nota í í netfangaheitum, þegar verið er að auglýsa á íslensku og auglýsingunum er beint að Íslendingum? Dæmi: visitakureyri.is og visithunathing.is. Þetta eru óþarfa slettur,sem Ríkisútvarpið ætur dynja á okkur dag eftir dag.
visir.is (21.08.2010): Jón Gnarr, borgarstjóri Reykjavíkur, setti Menningarnótt fyrir stundu í tjaldi við Ferðamálastofu Íslands Fréttavefur Ríkisútvarpsins (21.08.2010):Menningarnótt í Reykjavík var sett í 15. sinn af Jóni Gnarr borgarstjóra klukkan 13.Germynd á visir.is er betri óþörf þolmynd ruv.is.
Það var eitthvað barnslega bjálfalegt við það, þegar Kjartan Magnússon fv. stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur kom í fjölmiðla um helgina til að kenna öðrum um ófarir Orkuveitunnar. Sjálfstæðismenn eru saklausir sem ungabörn. Þetta er allt öðrum að kenna. Það er með ólíkindum hve sumir stjórnmálamenn halda kjósendur heimska.
Skildu eftir svar