Lyklar skipta um hendur sagði mbl. is við okkur í fyrirsögn (02.092010). Þetta er afar óíslenskulegt orðalag. Vonandi hafa fyrrverandi ráðherra og nýr ráðherra ekki látið hendur skipta, þegar þeir hittust . Í fréttinni segir svo: Nýbakaðir ráðherrar tóku við lyklum af ráðuneytum sínum síðdegis í dag. Hér er notuð röng forsetning, af í stað að. Það er bull að tala um lykla af ráðuneytum. Lyklar að ráðuneytum er rétt.
Glæsilegt var fjórmastra seglskipið, sem okkur var sýnt (02.09.2010) í fréttum Ríkissjónvarpsins. Það var í fréttunum ævinlega kallað barkskip, en barkskip eða barkur, er þrímastra seglskip að því er segir í Íslenskri orðabók. Svo vitnað sé í þá sömu bók hefði verið réttara að nota orðið skonnorta , sem þýðir tví- til fimmmastra seglskip með sérstökum seglabúnaði.
Í fréttum Ríkissjónvarps (01.09.2010) var talað um hitunarkostnað hundrað fermetra heimilis. Hér hefði verið eðlilegra að tala um hundrað fermetra hús eða íbúð. Heimili eru ekki reiknuð í fermetrum og þar að auki, þegar rætt er um hitunarkostnað húsnæðis, er eðlilegra að tala um rúmmetra frekar en fermetra. Það eru rúmmetrarnir sem skipta máli í þessu sambandi, — meira máli en fermetrarnir.
Fréttamat Morgunblaðsins (02.09.2010) í hnotskurn: Stjórnarflokkarnir bæta við sig. Fyrirsögn á eindálki. Það er alltaf hægt að reiða sig á Moggann.
Steypireyðurin norður á Skaga kemur við sögu í næstum hverjum einasta fréttatíma sjónvarpsstöðvanna og alltaf gengur fréttamönnum jafn illa að beygja heitið steypireyður rétt, – er þó einfalt að fletta því upp. Í fréttatíma Stöðvar tvö (01.09.2010) var talað um steypireyð, – sú orðmynd er ekki til í íslensku. Beygingin er : – steypireyður, steypireyði, steypireyði, steypireyðar. Þetta er í rauninni heldur einfalt , þótt sumir fréttamanni valdi því ekki.
Áfram er okkur misboðið með slettum í auglýsingum. Nú auglýsir Ríkissjónvarpið stærsta outlet landsins , og í annarri auglýsingu er þrástagast á nafni fyrirtækis sem hefur valið sér enskt heiti og kallast Curves.Á ensku þýðir curve , beygja eða sveigja. Fleirtalan gæti þýtt boglínur, en hér er væntanlega verið að vísa til konulíkama. Makalaus er smekkleysi og hugmyndafátækt margra þeirra sem reka fyrirtæki á Íslandi. Ríkisútvarpið kyndir undir meðan það ekki hafnar slíkum auglýsingum.
Um Íslendinga í Mputo í Mósambik, sagði fréttaþulur Ríkissjónvarpsins (01.09.2010) … eru heilir á húfi en halda sér innan dyra. Hér hefði átt að segja: … halda sig innan dyra. Undirritaður gleymir því seint er hann afhenti trúnaðarbréf sem sendiherra Íslands í Mósambik í nóvember árið 2000.. Það var margra hluta vegna eftirminnileg athöfn.
Ágætt væri, ef einhver velviljaður, benti þingfréttamanni Ríkissjónvarpsins á að hætta að baða úr höndunum í hvert einasta skipti,sem hún kemur í mynd. Þetta handapat er einkar hallærislegt að ekki sé meira sagt.
Kvöld eftir kvöld er okkur sýnd gömul mynd þar sem verið er að sminka, eða farða Jóhannes, frænda minn, í Bónus fyrir sjónvarpsviðtal. Sjónvarpsstöðvar,sem viðhafa vönduð vinnubrögð geta þess jafnan, þegar sýndar eru fréttamyndir úr safni, gamlar myndir. Þessi mynd af Jóhannesi er eldgömul og það vita allir sem vilja vita. Íslenskar sjónvarpsstöðvar geta þess hinsvegar næstum aldrei, þegar Þær sýna okkur gamlar myndir , myndir úr safni. . Þetta er auðvitað dónaskapur gagnvart áhorfendum. En kemur ekki á óvart ,því Ríkisútvarpið lítur viðskiptavini sína alveg sérstökum augum.
Svo er hér í lokin sérstök ástæða til vekja athygli á grein Elínar Skeggjadóttur, húsfreyju og tryggs útvarpshlustanda í Fréttablaðinu í dag 3. september. Hún spyr: Er RÚV dottið úr sambandi? Hún á kollgátuna.: http://www.visir.is/er-ruv-dottid-ur-sambandi?/article/2010546591137
Skildu eftir svar