Líklega þarf svolítinn tíma til að venjast veðurfréttum Ríkissjónvarpsins í nýjum búningi. Flest er þó þar til bóta, mest það sem Molaskrifari hefur oft beðið um, – að fá að sjá til veðurs í vesturheimi. Takk fyrir það. En ágætu sjónvarpsmenn, hlífið okkur við þessum iðandi, órólega bakgrunni fréttalesara. Hann er algjörlega óþolandi. Því fyrr …
Category Archive: Skrifað og skrafað
Molar um málfar og miðla 574
Molaskrifari hnaut um fyrirsögn í Viðskiptablaði Morgunblaðsins (31.03.2011): Þjóðnýting eigna er eins og að missa þvag í skó. Íslenskt orðtak segir: Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn. Þegar penpíuhátturinn er svo mikill að talað er um að missa þvag í stað þess að pissa, er langt gengið. Þar að auki er …
Molar um málfar og miðla 572
Nokkrum sinnum hefur það verið nefnt í þessum Molum að Ríkissjónvarpið sýnir viðaskiptavinum sýnum dónaskap, þegar kynntur er þátturinn Í návígi og þess látið rækilega ógetið við hvern á að ræða hvað. Hvaða tilgangi þjónar það að segja okkur ekki við hvern á að ræða? Í besta falli er þetta bjánalegt. Þetta er örugglega …
Molar um málfar og miðla 571
Skrifað er á mbl.is (29.03.2011): Danski varnarmaðurinn Mikkel Christoffersen, sem var til reynslu hjá karlaliði KR í knattspyrnu, verður ekki boðinn samningur við félagið. Danski varnarmaðurinn verður ekki boðinn samningur! Hér átti auðvitað að standa: Danska varnarmanninum… verður ekki boðinn samningur. Það er eins og sumir haldi að allar setningar þurfi að hefjast í …
Molar um málfar og miðla 570
Úr mbl.is fyrir fáeinum dögum: Flugumferðarstjórinn, sem hefur 20 ára starfsreynslu, hefur verið leystur undan störfum á meðan rannsókn fer fram. Það er hægt að leysa menn frá störfum, en það samræmist ekki góðri málvenju að tala um að leysa menn undan störfum. Í sömu frétt segir að flugumferðarstjórinn hafi verið einn í flugturninum á …
Molar um málfar og miðla 569
Og voru heimamenn meira og minna með boltann, sagði íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins (27.03.2011). Molaskrifari velkist svolítið i vafa um það hvað þetta merkir. Í sama fréttatíma var fjallað um útflutning á æðardúni og tekið svo til orða að æðardúnninn hefði verið fluttur af landi brott. Ekki er þetta nú beinlínis rangt, en ekki er oft tekið …
Molar um málfar og miðla 568
Molaskrifari stóðst ekki mátið og sendi stutt tölvubréf í sunnudagsþátt Sirrýjar á Rás tvö (27.03.2011) þar sem útvarpsstjóri og dagskrárstjóri sátu fyrir svörum. Vel var tekið í ábendingu um að orðin tax free í fjölmörgum auglýsingumværu ekki lýtalaus íslenska. Hinsvegar voru bæði útvarpsstjóri og dagskrárstjóri mjög ánægð með enskuskotið leikaraslúður um misfræga leikara sem …
Molar um málfar og miðla 567
Morgunblaðið birti fyrst fjölmiðla (26.03.2011) frétt um tilraun til að smygla til landsins miklu magni eiturlyfja. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins sama dag var sagt frá þessu og þess getið í framhjáhlaupi, að komið hefði fram í Morgunblaðinu, að fólkið sem að smyglinu stóð væri íslenskt. Þetta var ómerkilegt hjá fréttastofu Ríkisútvarpsins. Ríkisútvarpið hefði átt unna Morgunblaðinu …
Molar um málfar og miðla 566
Í fréttum Stöðvar tvö (24.03.2011) var sagt: .. frumvarpið var síðasta leið ríkisstjórnarinnar til að …. Betra hefði verið: Frumvarpið var lokatilraun (úrslitatilraun) ríkisstjórnarinnar til að …. Rúmlega ellefu og hálf milljón króna voru úthlutaðar til sex verkefna. Þetta er af fréttavef Ríkisútvarpsins (23.03.2011) Hér hefði átt að standa: Rúmlega ellefu og hálfri milljón króna …
Molar um málfar og miðla 565
Í grein í DV er skýrt frá því (23.03.2011) að gjaldþrot Seðlabankans sé fimmfalt Icesave. Beinhörð útgjöld vegna gjaldþrots Seðlabankans hafi numið 175 milljörðum króna og gjaldþrot Seðlabanks kosti hvert einasta mannsbarn á Íslandi 650 þúsund krónur. Enn fremur segir í greininni, að kostnaðurinn við Icesave sé 6% af kostnaði skattgreiðenda vegna falls bankanna. Morgunblaðið, …


