Oft eru hæpnar fullyrðingar í auglýsingum. Í auglýsingu í Útvarpi Sögu segir, að niðursoðin þorsklifur lækki blóðsykur. Hvað segir landlæknir? Er þetta rétt? Eða er verið að blekkja fólk ? Í þessari útvarpsstöð úir og grúir af hæpnum fullyrðingum um svokölluð fæðubótarefni, sem stundum reynast mesta ólyfjan. Í sama miðli er talað um hátíðarmat í …
Category Archive: Skrifað og skrafað
Molar um málfar og miðla 451
Er að – fárið breiðist út. Meistaranemi við Háskólann á Akureyri, sem svaraði spurningum í morgunþætti Rásar eitt (04.11.2010) var illa haldinn af þessari óværu. Nokkur dæmi: Það fyrsta sem ég er að sjá,… Við erum að standa nokkuð vel miðað við hin Norðurlöndin Í stað þess að segja : … börnunum líður vel… börnunum líður betur, …
Molar um málfar og miðla 450
Það er óbreytt menningarleg reisn yfir dagskrá Ríkissjónvarpsins. Frá klukkan 20 00 á fimmtudagskvöldi (04.11.2010) til klukkan 23 05 var okkur áhorfendum boðið upp á fjórar bandarískar þáttaraðir í beit. Þá tók við endursýndur norskur þáttur. Þetta er ótrúlegt, – en satt. Komu upp um leynileg göng, segir í fyrirsögn á mbl.is (04.11.2010). Hér hefði verið …
Molar um málfar og miðla 449
Úr visir.is (02.11.2010) Ekki er um eiginlega fjársöfnun að ræða, heldur samskot sem voru tekin einu sinni. Á íslensku er ekki talað um að taka samskot. Eðlilegra er að tala um að efna til samskota, þegar fé er safnað handa einhverjum sem er fjár vant. Nú erum við að tala saman, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (02.11.2010) …
Molar um málfar og miðla 448
Til varnar útrásarvíkinga, segir í millifyrirsögn á dv.is (02.11.2010). Þarna hefði átt að segja: Til varnar útrásarvíkingum. Himinn og haf er milli frásagna Morgunblaðsins og DV (03.11.2010) af manninum,sem bera átti út á Laufásvegi í gær. Kjarninn í frásögn Morgunblaðsins er að bankinn hafi verið vondur við manninn. Ekkert er nefnt hve mikið hann skuldaði. …
Molar um málfar og miðla 447
Um helgina heyrði Molaskrifari í útvarpi talað um að brýna sög. Nú er Molaskrifari ekki sérfróður um málfar á þessu sviði frekar en öðrum, en hann hefur ævinlega heyrt talað um að skerpa sög, þegar sög er farin að bíta illa. Má vera að hér sé málvenja mismunandi eftir landshlutum og auðvitað er ekkert rangt við …
Molar um málfar og miðla 446
Bók Arnaldar beðið með eftirvæntingu,segir í fyrirsögn á visir is (31.10.2010). Bók er ekki beðið. Bókar er beðið. Líklega hefur sá sem samdi fyrirsögnina verið hræddur við að skrifa: Bókar Arnaldar beðið með eftirvæntingu. Þessu var svo breytt í rétt horf er leið á daginn. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (31.10.2010) var í fréttayfirliti talað um staðráðna …
Molar um málfar og miðla 445
Stundum fara menn of langt í beygingum. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (30.10.2010) var sagt frá frumflutningi nýfundinna verka eftir Sveinbjörn Sveinbjörnsson, höfund þjóðsöngsins Ó, Guðs vors lands. Þarna hefði fréttamaður átt að segja: Höfund þjóðsöngsins Ó, Guð vors lands. Sprengjan var ein tveggja, sem … var sagt í tíufréttum Ríkisútvarpsins (30.10.2010). Rétt hefði verið að segja: …
Molar um málfar og miðla 444
Í Fréttablaðinu (29.10.2010) segir: Guðni tók þessum ávirðingum óstinnt upp og kvaðst… Þarna hefði verið rétt að segja: Guðni tók þessar ávirðingar óstinnt upp… Málvenja er að tala um að taka eitthvað óstinnt upp ekki að taka einhverju óstinnt upp. . Það hefði hinsvegar mátt segja að Guðni hefði tekið þessum ávirðingum illa. … og …
Molar um málfar og miðla 443
Úr frétt á mbl.is (27.10.2010): Þó eru nokkrir áhafnarmeðlimir sem völdu að sigla allt tímabilið. Molaskrifara finnst áhafnarmeðlimur vera orðskrípi. Þarna hefði auðvitað átt að tala um skipverja (ekki skipsverja eins og skrifað var á skjá Ríkissjónvarpsins í tíufréttum). Skrítið er líka að tala um að sigla allt tímabilið. Betra hefði verið að segja, – …


