Category Archive: Skrifað og skrafað

Molar um málfar og miðla 413

Þrátt fyrir allt leynist ýmislegt gott innan um  íhalds- og afturhaldsbullið á ÍNN.  Ingvi Hrafn sagði hlýlega og  fallega frá erfiðum veikindum  Jóns Arnar bróður síns, sem  býr ásamt  fjölskyldu  sinni í Regina Sask.  í Kanada. Þetta var vel gert ,Ingvi Hrafn, og snart alla, sem þekkja þetta góða fólk. Vonandi fær  Jón Örn  góðan bata. Við …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 412

Úr dv.is (22.09.2010): …og vantar stjórnarflokkunum aðeins tvö sæti til að tryggja sér hreinan meirihluta á sænska þinginu. Þetta köllum við íhaldsmenn um málfar  þágufallssýki, en  reiðarekssinnar telja  þetta rétt mál og  líklega   vandað orðalag.  Í anda þess að allt sem sagt er, – sé  rétt.  Í fréttum Stöðvar tvö (22.09.2010) var sagt: Drengurinn var klæðalítill…  Þetta …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 410

Svolítið villandi fyrirsögn var í mbl. is (21.09.2010) 100 ár síðan kona var tekin af lífi í Virginíu.  Þegar fréttin  er lesin,  kemur í ljós, að  fyrirhugað er að taka  konu af lífi í Virginíu, en  kona var síðast tekin af lífi þar fyrir  hundrað árum.  Fyrirsögnin var  ekki röng, en horft var framhjá aðalefni …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 409

 Í fréttum Ríkissjónvarpsins (20.09.2010) var talað um bavarískan prins  (e. Bavarian). Orðið bavarískur er ekki til  í íslensku. Sá sem er  frá Bæjaralandi, eins og  hér var um rætt,  er bæverskur. Nýir fréttamenn falla í gamlar gryfjur vegna þess að enginn segir þeim til eða les yfir það sem þeir skrifa. Stundum hefur verið  vikið hér …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 408

Fyrir stundu lyftu knattspyrnukonur Vals 100. titli félagsins. Svona tekur rithöfundur  til orða á bloggsíðu sinni. Molaskrifari hefur  aldrei heyrt  þetta orðalag, en giskar á að rithöfundurinn  eigi  við að knattspyrnukonurnar hafi fært  félagi sínu hundraðasta titilinn. Þess ber að geta  sem vel er gert. Heimildamyndin um Sesselju Sigmundsdóttur  á  Síóheimum ,sem Ríkissjónvarpið  sýndi 19.09.2010  var  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 407

Er þetta mikill eða lítill fjöldi?  Svona spurði fréttamaður Stöðvar tvö (18.09.2010).   Vonandi er það lítill fjöldi fréttamanna,sem orðar spurningar   svona.  Góður Tungutakspistill í  Lesbók Mogga(19.09.2010) . Höfundur er Baldur Hafstað. Í fréttum Ríkisútvarps  (18.09.2010) var talað um að kjörstaðir opnuðu (hvað ?). Í  fréttum Ríkissjónvarpsins  (16.09.2010) var sagt: Hér í safninu opnar sýningin…Við  tónlistarhúsið …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 406

Æ oftar les maður og heyrir talað um að hafa  gaman, sem er   hráþýðing úr ensku to have fun.  Þetta er  ágætt á ensku en  ekki  á íslensku. Síðast  rakst  ég á þetta í tölvupósti frá þeim ágætu  samtökum Sterkara Ísland.   Ísland verður ekki sterkara  með því  skemma  móðurmálið. Síður en svo.   Morgunútvarpsmaður í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 405

Molaskrifara var brugðið, er hann las Tungutakspistilinn í  Lesbók  sunnudagsmogga (12.09.2010). Þar segir Gísli  Sigurðsson prófessor  við Árnastofnun: „Misskilningurinn er sá að halda að málfræðin sé rétt en málið vitlaust. Almenna reglan er sú að ef fullþroska málhafar beygja orð með tilteknum hætti, tala til dæmis um „vísira“ á klukkum og hringja í „læknira“ ( í …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 404

50 manna sameiginleg framboð í Heimdall, segir í  fyrirsögn á mbl.is (13.09.2010). Þessa  fyrirsögn skilur Molaskrifari ekki. Meira um Heimdall: Frambjóðendur til stjórnar Heimdalls, segir einnig  sama  dag í mbl. is. Molaskrifari á  því að venjast  að eignarfallið af Heimdallur sé  Heimdallar, en eignarfallið af  dallur, sem merkir  þá  heldur ómerkilegt ílát , sé dalls. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 403

Í fréttum Ríkissjónvarpsins (09.09.2010) var talað um fjármálafyrirtækin,sem hlut áttu í máli. Rétt hefði verið að tala um fyrirtæki,sem hlut áttu að máli. Í sama fréttatíma   Ríkissjónvarpsins var okkur sagt, að íslenska glíman væri samnorrænt sport í grunninn.  Það var og. Eitt helsta framlag Ríkisútvarpsins okkar til sígildrar tónlistar er að útvarpa  sígildum tónverkum á …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts