Úr dv. is (05.07.2010) : „Fyrir mína parta er ég hér að mótmæla afskiptum Alþjóðagjaldeyrissjóðsins að ríkiskassanum,“ segir Birgitta (Jónsdóttir). Sumum þingmönnum er annað betur gefið en að vanda málfar sitt. Hér ruglar þingmaðurinn saman forsetningunum að og af,sem orðið er ótrúlega algengt. Málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins skrifar grein í Fréttablaðið (07.07.2010) og segir þar meðal annars: „Raunar …
Monthly Archive: júlí 2010
Molar um málfar og miðla 346
Hún sigraði Júróvisjónkeppnina, sagði umsjónarmaður poppþáttarins, sem sjónvarp ríkisins býður okkur upp á á laugardagskvöldum. Sigraði keppnina. Það var og. Á vef Ríkisútvarpsins (03.07.2010) stendur:… og fyrsta skóflustungan af nýju gróðurhúsi var tekin. Hér er ruglað saman forsetningunum að og af. Ekki er tekin skóflustunga af nýju gróðurhúsi, heldur að nýju gróðurhúsi. Árni …
Molar um málfar og miðla 345
Mörg gullkornin hafa hrotið af vörum íþróttafréttamanna og þeirra sem lýsa gangi knattspyrnuleikja að undanförnu. Vinur Molaskrifara rifjaði upp í samtali að á dögunum hefði einum þeirra,sem lýsa leikjum orðið það á að segja: Hann mundaði hægri fót og .…. Stundum eru menn bráðskemmtilegir, – alveg óviljandi. Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (03.07.2010) var sagt, að þyrla …
Molar um málfar og miðla 344
Úr mbl.is (01.07.2010): Líkt og fram hefur komið er hvöss lægð yfir landinu nú og má búast við hvössum vindi víða á landinu í dag. Molaskrifaði minnist þess ekki að hafa áður heyrt talað um hvassar lægðir. Málvenja er að tala um djúpar lægðir, eða krappar lægðir í fréttum af veðri og vindum. Úr Fréttablaðinu …
Molar um málfar og miðla 343
Í íþróttafréttum Ríkisútvarpsins (30.06.2010) var sagt: … ákvað að við svo búið mætti ekki sitja. Molaskrifari er vanur því að sagt sé, að við svo búið megi ekki standa, þ.e. að það ástand sem ríki sé óviðunandi. Það er aldrei nein pólitík í fréttamati Morgunblaðsins. Sussu nei ! Undir fyrirsögninni: Samþykktin hörmuð var sagt frá …
Molar um málfar og miðla 342
Fréttir í Útvarpi Sögu fóru hnökralaust af stað (01.07.2010), en þar er reyndur fréttamaður Haukur Hólm við stjórnvölinn. Einhverjum kann ef til vill að finnast sú orðanotkun orka tvímælis að kalla fólk á þrítugsaldri ungmenni eins og gert var í fyrsta fréttatímanum. Það orð finnst Molaskrifara betur eiga við um fólk undir tvítugsaldri. Verið var að …


