Þar féllu nokkur él, sagði veðurfræðingur í veðurfréttum Ríkissjónvarps. Molaskrifari man ekki til þess að hafa heyrt þetta orðalag, en það segir svo sem lítið. Og auðvitað er ekkert rangt við þetta orðalag. Þarna hefði einnig mátt tala um éljagang. Nokkuð algengt er líka, að sagt sé: Það kastaði éljum, gekk á með éljum. …
Monthly Archive: febrúar 2011
Molar um málfar og miðla 541
Molaskrifari hélt að búið væri að gera orðalagið að sigra kosningar útlægt úr fréttastofu Ríkisútvarpsins. Svo er ekki. Það lifði góðu lífi í morgunútvarpi Rásar eitt (25.02.2011) Hvað segir málfarsráðunautur Ríkisútvarpsins um orðalagið: Höfum það gaman saman? Þetta orðalag glymur aftur og aftur í eyrum okkar í auglýsingum Ríkisútvarpsins um eigin dagskrá. Það er því heimasmíðað. …
Molar um málfar og miðla 540
Kafarar skoðuðu undir Goðafoss í dag var sagt í sexfréttum Ríkisútvarpsins (23.02.2011) Sama orðalag var notað í fréttum Ríkissjónvarps. Þetta er hálfklaufalegt orðalag. Betra hefði verið að segja, að kafarar hefðu skoðað botn Goðafoss í dag. Í yfirliti um efni sama fréttatíma var talað um að berja(uppreisnina í Líbíu) á bak aftur. Þetta er rangt. …
Molar um málfar og miðla 539
Í fréttum Stöðvar tvö var talað um, að tannlæknar væru krafnir um. Hér hefði átt að segja, að tannlæknar væru krafðir um. Eða þess væri krafist, að tannlæknar…. Beygingakerfið er á undanhaldi. Enn eitt dæmið um það var í mbl.is (23.02.2011): Ráðuneytið hefur náð samkomulagi við forsvarsmenn skólans um að nemendur sem hófu nám …
Molar um málfar og miðla 538
Ólafur Ragnar mun eiga fund með páfa á þriðjudag og fær hann einkaáheyrn en slík þykir afar sjaldgæft,(mbl.is 22.02.2011) Það er auðvitað eins og hvert annað bull ,að það sé sjaldgæft að þjóðhöfðingjar fái einkaheyrn hjá páfa. Blaðamenn láta forsetaskrifstofuna plata sig. Það þætti sæta tíðindum, ef þjóðhöfðingi ,sem óskar eftir áheyrn fengi ekki áheyrn. Morgunblaðið er gengið …
Tvískinnungur og rökleysur á Bessastöðum
Orðréttar tilvitnanir í ummæli Ólafs Ragnars Grímssonar á blaðamannafundinum sl. sunnudag sýna hvernig tvískinnungur og rökleysur ráða nú ríkjum á Bessastöðum. Forsetinn heldur líklega að upp til hópa séum við kjánar og þess vegna sé í lagi að tala til okkar í ósamrýmanlegum þversögnum. Það gerði hann á sunnudaginn var. Á blaðamannafundinum sl. sunnudag sagði Ólafur …
Skilgreiningar hannaðar eftir hendinni á Bessastöðum
Forseti lýðveldisins hannar nú nýjar skilgreiningar eftir hendinni til að þjóna hentisemi sinni og persónulegum metnaði. Þjóðin er löggjafinn, er alveg ný skilgreining. Hún finnst líklega hvergi á bókum, en hún hentar núna, þegar Ólafur Ragnar Grímsson er byrjaður að búa sig undir framboð til fimmta kjörtímabilsins á Bessastöðum. Hann er alltaf að reyna að gera …
Molar um málfar og miðla 537
Fínt orð fréttaskýring. Óþarfi að tala um fréttaútskýringu eins og gert var í morgunútvarpi Rásar tvö (21.02.2011) Undarlegt fréttamat Ríkissjónvarpsins (20.02.2011) að tala við tvo mótmælendur við Bessastaði, sem höfðu ekkert fram að færa. Í beinu útsendingunni frá Bessastöðum sagði fréttamaður Ríkissjónvarpsins að 40 þúsund undirskriftir og 56 þúsund undirskriftir væru mjög svipaðar tölur. Meira …
Molar um málfar og miðla 536
Óljóst er hvenær Goðafoss verður fluttur af strandstað í Noregi, segir á fréttavef Ríkisútvarpsins (19.02.2011). Nákvæmlega sama orðalag var reyndar notað í hádegisfréttum. Það er ekki í samræmi við málvenju að tala um að flytja skip af strandstað. Skip eru ekki flutt af strandstað. Vonandi verður Goðafoss fljótlega dreginn á flot af skerinu. Undarlegt er …
Molar um málfar og miðla 535
Í fréttum Stöðvar tvö, um strand Goðafoss var sagt: Sjópróf verða gerð. Sjópróf eru ekki gerð. Sjópróf fara fram. Ekki mjög flókið. Í einni frétt Ríkisútvarpsins af strandinu var sagt: Norska útvarpið náði síðdegis samband við… Ekki nógu gott. Norska útvarpið náði sambandi við…. Morðin verða enn fleira og hrikalegri, sagði í auglýsingu um …


