Líklega þarf svolítinn tíma til að venjast veðurfréttum Ríkissjónvarpsins í nýjum búningi. Flest er þó þar til bóta, mest það sem Molaskrifari hefur oft beðið um, – að fá að sjá til veðurs í vesturheimi. Takk fyrir það. En ágætu sjónvarpsmenn, hlífið okkur við þessum iðandi, órólega bakgrunni fréttalesara. Hann er algjörlega óþolandi. Því fyrr …
Monthly Archive: apríl 2011
Molar um málfar og miðla 574
Molaskrifari hnaut um fyrirsögn í Viðskiptablaði Morgunblaðsins (31.03.2011): Þjóðnýting eigna er eins og að missa þvag í skó. Íslenskt orðtak segir: Það er skammgóður vermir að pissa í skóinn sinn. Þegar penpíuhátturinn er svo mikill að talað er um að missa þvag í stað þess að pissa, er langt gengið. Þar að auki er …
Molar um málfar og miðla 573
Fljótt á litið virðist andlitslyfting sjónvarpsfrétta Ríkisútvarpsins hafa tekist bærilega, – nema iðandi og órólegur veggur bak við fréttaþul truflar og er pirrandi. Dregur athyglina frá því sem verið er að segja. Því ætti að breyta sem fyrst. Veðurfregnir hafa líka fengið nýjan svip. Gaman hefði verið að sjá til veðurs í vesturheimi, en …


