Í fréttatímum beggja sjónvarpsstöðvanna var rætt við formann Bændasamtakanna, sem fjölyrti að vanda um fæðuöryggi. Staðreynd er að íslenskur landbúnaður er svo háður erlendum aðföngum að hann tryggir þjóðinni ekki fæðuöryggi fyrir fimm aura , ef tekur fyrir aðdrætti erlendis frá. Það á að hlífa okkur við svona bulli. Bændur óttast að fá ekki lengur …
Molar um málfar og miðla 651
Lögreglan er sögð mútuþægin, sagði fréttamaður Stöðvar tvö (07.07.2011) og átti við lögregluna í Taílandi. Þetta hljómaði ekki rétt í eyrum Molaskrifara. Betra hefði verið að segja: Lögreglan er sögð mútuþæg. Eða: Lögreglan er sökuð um mútuþægni. Úr mbl.is (06.07.2011): 365 miðlar ehf. eignuðust 47% hlut í Hjálmi, aðaleiganda útgáfufélagsins Birtíngs, í janúar síðastliðinn. …
Molar um málfar og miðla 650
Það er engu líkara en svolítið sé að rofa til hjá Ríkisútvarpinu í Efstaleiti, ef marka má viðtal við Sigrúnu Stefánsdóttur dagskrárstjóra í Morgunblaðinu (05.07.2011). Dagskrárstjórinn gerir sér grein fyrir að gengið hefur verið fram af öllu venjulegu fólki með óhóflegu magni íþróttaefnis og með því að henda fréttatímum til í dagskránni eftir því …
Molar um málfar og miðla 649
Með ruslpóstinum barst Molaskrifara auglýsingabæklingur fyrir svokallaða go-kart braut í Garðabæ. Ekki kann Molaskrifari gott íslenskt orð fyrir þessa smábíla og væri gaman að heyra tillögur um slíkt. í bæklingnum segir, að brautin sé stærsta, fullkomnasta, fjölbreyttasta og hraðskreiðasta go-kart braut Íslandssögunnar. Ekki lítið! Nú er Íslandssaga svokallaðra go-kart brauta í mesta lagi fáein ár, …
Molar um málfar og miðla 648
Franska togarann tók niðri, sagði fréttamaður Ríkissjónvarpsins (03.07.2011) Togarann tók ekki niðri. Togarinn tók niðri. Það ætti enginn fréttamaður að flaska á svona grundvallaratriði. Úr mbl.is (03.07.2011): Miklar rigningar ollu skriðuföllum í Sichuan héraði í suðvesturhluta Kína í dag. Skriðan einangraði héraðið frá umheiminum. Ein skriða einangrar ekki Sichuanhérað frá umheiminum, jafnvel þótt hún falli …
Molar um málfar og miðla 647
Í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins (02.07.2011) klukkan 12 20 var sagt frá því að björgunarbátar væru á leiðinni til að bjarga áhöfn og farþegum úr báti sem strandað hefði við Lundey á Kollafirði. Í fréttum Bylgjunnar klukkan 12 00 hafði hinsvegar verið frá því sagt, að búið væri að bjarga öllu fólkinu. Það sama kom fram á …
Molar um málfar og miðla 646
Eitt ofnotaðasta (og misnotaðasta) orðtak tungunnar er að vinna hörðum höndum að einhverju. Hlálegt dæmi um þetta var í Fréttatímanum (01.07.2011) þar sem segir um auðkýfinginn Kára Stefánsson, sem á sögufrægt stórhýsi í vesturbæ Reykjavíkur, að hann vinni nú hörðum höndum að því að byggja annað glæsihýsi í Kópavogi!! Molaskrifari sér ekki auðmanninn fyrir …
Molar um málfar og miðla 645
Það getur vart talist vandað mál, þegar fréttamaður segir, að tiltekinn atburður hafi gerst svo snemma sem .. Í níufréttum Ríkisútvarps (01.07.2011) talaði fréttamaður um tölvupósta sem hefðu verið sendir svo snemma sem … Þetta er enskættuð íslenska alveg eins er það ekki vandað mál að tala um að eitthvað sé á pari við eitthvað …
Molar um málfar og miðla 644
Það versta er, að Færeyingar eru sex sætum fyrir ofan okkur, sagði íþróttafréttamaður Ríkisútvarpsins (29.06.2011) um lista þar sem þjóðum heims er raðað eftir getu landsliða þeirra í knattspyrnu. Í þessum orðum íþróttafréttamanns þessarar ríkisstofnunar felst einstakur þjóðrembingur og hroki. Íslendingar eru lélegir í knattspyrnu um þessarar mundir. Færeyingar eru betri. Leiðin til að bæta …
Molar um málfar og miðla 643
Grindvíkingar eru hvattir til þess að láta lögreglu vita um grunsamlegar mannaferðir og læsa húsin sín, hvort sem fólk er heima eða heiman. Þetta er af vef Grindavíkur. Birtist raunar einnig orðrétt á mbl.is. Þar hafa menn greinilega ekkert séð athugavert við þennan texta. Fólk málar húsin sín, en læsir húsunum sínum. Þorkell Guðbrandsson …