Molar um málfar og miðla 622

  Í hádegisfréttum  Ríkisútvarps (05.06.2011)  var talað um snjólög,  þegar  tala hefði átt um snjóalög.  Í fréttayfirliti í lok frétta talaði fréttamaður  réttilega um  snjóalög, en leiðrétti sig og talaði þá um snjólög. Snjóalög  eru segir orðabókin: Verulegur snjór á jörð eftir að oft hefur snjóað. Úr visir.is (05.06.2011): Um helmingur þessara lyfja var ávísað …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 621

Það þurfti einn af helgidögum þjóðkirkjunnar, uppstigningardag, til að fá Ríkissjónvarpið til að sinna   sígildri tónlist. Þá  (02.06.2011) voru  endursýndir tveir prýðilegir þættir, Kristinn Sigmundsson á Listahátíð í fyrra og þáttur úr  þáttaröð Jónasar Sen Tíu fingur þar sem þau  Anna Guðný Guðmundsdóttir og Sigurður Snorrason  voru í  forgrunni. Gott efni, en gaman  væri líka …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 620

Það er því miður of  algengt að talað sé um tvær  dyr. Það gerir  eyjubloggari (02.06.2011) og segir:  Hér í Reykjavík eru dæmi um að fólk hafi tunnur sínar ofaní kjallara á bak við tvær læstar dyr,… Orðið  dyr er  fleirtöluorð. Þessvegna ætti að  tala um tvennar læstar dyr, ekki tvær. Tvennar buxur. Ekki tvær …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 619

  Nýr fréttalesari í Ríkissjónvarpinu (31.05.2011), Rakel Þorbergsdóttir komst prýðilega  frá  sínu í kvöldfréttum. Molavin sendi eftirfarandi: visir.is fjallar í dag  (01.06.2011) um forsetakjör í Alþjóða knattspyrnusambandinu. Þar segir m.a. „Englendingar hlutu afhroð í kosningunum um hvar ætti að halda HM 2018…“ Menn gjalda afhroð eða hljóta illa útreið, lúta í lægra haldi, bíða ósigur …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 618

Svona vörumst við svindlurum á net-  segir í fyrisögn í DV (30.05.2011). Þarna vantar lokin á setninguna.  Aukinheldur ætti þetta  að vera:  Svona vörumst við svindlara. Við  gætum okkar á  svindlurum. Vörumst  svindlara. Verið  var að ræða um þá sem  svindla á fólki í netverslunum. Gunnar Bergmann sendi samkennurum sínum eftirfarandi setningu úr hádegisfréttum Ríkisútvarpsins …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 617

Í vikudagskrá Ríkissjónvarpsins bera sunnudagskvöldin af.   Í Landanum er jafnan  áhugavert  efni víðsvegar að af landinu  og Skarfamynd  þeirra  Páls Steingrímssonar og Friðþjófs Helgasonar (29.05.2011)  var frábær. Eiginlega afrek að mati Molaskrifara. Takk fyrir það. Ekki var Molaskrifari jafnhrifin af  Töfraflautu  Mozarts, sem Kenneth Branagh hefur   skáldað í kvikmynd. Tónlistin ævinlega jafnhrífandi, en myndgerðin og …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 616

Í áttafréttum  Ríkisútvarps  (28.05.2011) var ítrekað talað um  konungsdæmi. Molaskrifari hyggur að málvenja sé að tala um konungdæmi og konungsríki. Þar var líka sagt: … Þegar leigubíll,sem hann ætlaði með var ekið af stað … . Leigubíl var ekið af stað, ekki leigubíll. Stundum kemst einhver  villa á kreik í fréttum. Villuna étur svo hver  …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 615

Þórhallur  Jósepsson  sendi  Molum eftirfarandi ábendingu: Stöð eitt er fyrirbæri, sem birtir dagskrá sína á vefnum. Í dag (26.05.2011) er birt dagskrá gærdagsins. Tvær bíómyndir. Önnur þeirra er kynnt svona: „20:00 The Gauntlet   Lögreglumanninum Ben Shockley from Phoenix er falið það verkefni að halda til las Vegas og sækja þar ómerkilegt vitni í ómerkilegum réttarhöldum. …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 614

  Molavin sendi eftirfarandi úr  dv. is  (25.05.2011):  Milljarðaskuldir N1 breytt í hlutafé. Það er ekki aðeins svo komið að nýfréttafólki reynist nær útilokað að ráða við aukasetningar; beyging nafnorða virðist því líka um megn.  Molaskrifari  þakkar sendinguna.  Glöggur lesandi sendi Molum eftirfarandi (26.05.2011): ,,Ég rak augun í undarlega orðnotkun í morgun í Fréttablaðinu.  Á …

Lesa meira »

Molar um málfar og miðla 613

Ásgeir Páll   sendi Molum eftirfarandi,  þegar hann hafði lesið heimasíðu forsætisráðherra: ,, …  ákvað ég að senda þér þessi skilaboð þegar ég sá  „færslu“ á Facebook síðu Jóhönnu nokkurrar Sigurðardóttur. Hún skrifar: „Nokkrar myndir úr fróðlegri og skemmtilegri fundaferð mín og velferðarráðherra Guðbjartur Hannesson. Opnir fundir á Akureyri, Blönduósi og Akranesi og háskólinn á Bifröst …

Lesa meira »

Older posts «

» Newer posts