Gleðilegt ár ! Áramótaávarp forsetans var athyglisvert fyrir þrennt. Í fyrsta lagi það sem hann sagði um skipan embættismanna í dómskerfinu. Í öðru lagi orð hans um óttann við geðþóttavald ráðamanna og nauðsyn siðvæðingar í stjórnkerfinu. Í þriðja lagi var svo varnaglinn sem hann sló er hann talaði um vilja þjóðarinnar sem hornstein stjórnskipunar lýðveldisins, …
Kryddsíld og kennitöluflakk
Kryddsíld Stöðvar tvö er hætt að kitla bragðlaukana með sama hætti og áður. Kryddið hefur svolítið dofnað, annars fórst Heimi Má stjórnin ágætlega úr hendi. Það var með ólíkindum að annars ágætur fréttamaður, Lóa Pind Aldísardóttir skyldi kalla til sem álitsgjafa lögfræðing sem komist hefur í fréttir vegna kennitöluflakks. Hann var óspar á fordæmingar , …
Molar um málfar og miðla 228
Bjarni Sigtryggsson sendi Molum eftirfarandi: Í fréttum RÚV sjónvarps las fréttaþulur (22.12.20009) eins og rétt mál væri að bíða milli ótta og vonar. Ekki venjubundið orðalag. Við tölum um að bíða milli vonar og ótta. Þetta var hinsvegar rétt í skjátexta. Því er svo við að bæta að í fréttum RUV síðustu tvö dægur hefur ítrekað …
Molar um málfar og miðla 227
Margt var gott um fyrri hluta heimildamyndarinnar um það þegar þýskur kafbátur sökkti Goðafossi út af Garðskaga í nóvember 1944. Hún var vel og fagmannlega gerð. Það var hinsvegar nærri hámarki smekkleysis hjá sjónvarpi ríksins að sýna rétt á undan auglýsingu frá Eimskipafélagi Íslands þar sem sungið var : „Þá var hlegið við störfin …
Molar um málfar og miðla 226
Úr fréttum RÚV sjónvarps (22.12.2009) Samkvæmt yfirvöldum á staðnum. Þetta er ekki boðlegt orðalag. Betra væri: Að sögn yfirvalda á staðnum. Í sama fréttatíma var talað um að líta á eitthvað alvarlegum augum. Þarna er á ofaukið. Rétt er að tala um að líta e-ð alvarlegum augum. Einkennileg þótti Molaskrifara bókarauglýsing sem margsinnis var …
Molar um málfar og miðla 225
Í Bæjarmálum, málgagni Samfylkingarinnar í Garðabæ er svohljóðandi fyrirsögn á baksíðu (21.12.2009): Tvennir flokksstjórnarfundir í Garðabæ. Sama orðalag er notað í fréttinni. Hér hefði átt að tala um tvo flokksstjórnarfundi. Ef um tónleika hefði verið að ræða hefði átt að tala um um tvenna tónleika. Tveir fundir. Tvennir tónleikar. Úr dv.is (21.12.2009):Karen Rawlins óttaðist að …
Molar um málfar og miðla 224
21.12.2009 | 13:10 Molaskrifari gerir lítið af því að taka texta af fésbókinni og viðra hér. Þessa setningu stóðst hann ekki: Með miklu áti er undirbúið sig fyrir heljarinnar snjóstorm sem er á leiðinni í borgina. Ótrúlega eru þeir margir, sem halda að orðið snjóstormur sé íslenska. Svo er ekki. Þetta er aulaþýðing úr …
Molar um málfar og miðla 223
Úr kvöldfréttum RÚV sjónvarps (18.12.2009) : Þá er bent á að leiðbeinendur námskeiðsins… Það er sem sé verið að leiðbeina námskeiðinu! Eðlilegra hefði verið að segja: Leiðbeinendur sem kenna á námskeiðinu… Garðapósturinn flytur okkur Garðbæingum margvíslegan fróðleik. En menn þurfa á þeim bæ að vanda málfarið svo við hnjótum ekki um setningar eins og …
Molar um málfar og miðla 221
Í DV (16.12.2009) er tekið svo til orða að ,feitt bragð sé af kjötinu“. Hér þætti Molaskrifara eðlilegra að segja að fitubragð sé að kjötinu, því bragð er að þá barnið finnur, eins og þar stendur. Í sama blaði er talað um að svör við spurningum blaðamanns hafi verið fáfengileg. Molaskrifari er þeirrar skoðunar , …