Af mbl.is (16.06.2014): ,,Lögreglan á Selfossi stöðvaði för ökumanns á Skeiðavegi í gærkvöldi sem reyndist vera dauðadrukkinn undir stýri. Þess fyrir utan var hann sviptur ökuréttindum”. Þetta hefði betur mátt orða annan veg: Þess utan hafði hann verið sviptur ökuréttindum. Þar við bættist, að hann hafði verið sviptur ökuréttindum. Eða bara: Hann hafði ekki …
Molar um málfar og miðla 1495
Molavin skrifaði (15.06.2014): „10 ávanar hamingjusamra para“ segir í fyrirsögn þess helgarmogga, sem ber hið þjóðlega nafn Monitor. Málkennd og orðabók segja manni að „ávani“ þýði „slæm venja.“ Í greininni er hins vegar fjallað um 10 hollar lífsvenjur, sem einkenni hamingjusamt fólk í sambúð.- Molaskrifari þakkar ábendinguna. Hefnt verður fyrir þá sem féllu, var …
Molar um málfar og miðla 1494
Rafn vísar til fréttar á vef dv.is (13.06.2014) þar sem sagði : Stal bílnum og stakk hann lífshættulega. Hann spyr: Hvernig er farið að, þegar bíll er stunginn lífshættulega???Von er að spurt sé. Einhver fullorðinn á vaktinni hefur rekið augun í þetta, því fyrirsögnin var leiðrétt. Enn kom það skýrt í ljós í gærkveldi (15.06.2014) …
Molar um málfar og miðla 1493
Útvarpshlustandi sendi eftirfarandi (13.06.2014): ,,Í hádegisútvarpinu í dag var verið að ræða við einhvern framámann útihátíðarinnar „Kótelettan“ á Selfossi. Sá var að hvetja gesti til þess að mæta og talaði sérstaklega um tjaldstæði þeirra Selfyssinga. Þar erum við komin út í sveit, sagði maðurinn. Grænt grasið allt um kring og svo jarma beljurnar í hverju …
Molar um málfar og miðla 1492
Molavin skrifaði: ,,Af Netmogga 10.6.14: „… hafi maðurinn verið handtekinn til að tryggja framkvæmd ákvörðunarinnar um að senda hann til Ítalíu. Framkvæmdin hafi átt að eiga sér stað klukkan 01.00…“ Þótt lögregla geti varla skrifað boðlega íslenzku lengur er engin ástæða fyrir fréttamenn að éta orðrétt upp það illskiljanlega stofnanamál, sem frá lögreglu kemur. Sérstaða …
Molar um málfar og miðla 1491
Úr frétt á mbl.is (09.06.2014) um franskan hellakönnuð sem lokaðist inni í helli vegna grjóthruns: ,, Flókið og umfangsmikið gangnakerfi hellisins gerir aðgerðina mjög erfiða,”. Hér ætti að standa gangakerfi , ekki gangnakerfi. Göngur eru ekki í hellum. Úr sömu frétt:,, Stefnt er að því að koma upp grunnbúðir fyrir björgunarstarfið á 300 metra …
Molar um málfar og miðla 1490
Reyndir fréttamenn eiga ekki að rugla Evrópuráðinu (e.Council of Europe) inn í Evrópusambandið, ESB, eins og gert var í fréttum Ríkissjónvarps í gærkveldi (10.06.2014). Þar eru engin tengsl á milli. Ísland gerðist aðili að Evrópuráðinu 7. mars 1950. Ísland er ekki aðili að Evrópusambandinu, ESB. Í ESB er leiðtogaráð, (e. European Council) en í því …
Molar um málfar og miðla 1489
Í auglýsingu á forsíðu Morgunblaðsins (06.06.2014) auglýsti Flugfélag Íslands: FLJÚGÐU Á FESTIVAL með Flugfélagi Íslands. Þetta finnst Molaskrifara vera heldur vond auglýsing. Hér er hrært saman ensku og íslensku. Festival er ekki íslenska. Festival er enska og þýðir hátíð. Kannski er þannig komið fyrir þessu íslenska félagi, að menn gera þar ekki greinarmun á ensku …
Molar um málfar og miðla 1488
Molavin skrifaði (05.06.2014): „Þar hafði verið brotin rúða og stolið sjóðsvél. Málið í rannsókn lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.“ (Mbl-frétt 6.6.14) Fréttabörn hafa ekki fengið þjálfun í því að umorða fréttatilkynningar lögreglu. Það segir sig sjálft í frétt um innbrot í hús í Reykjavík hvaða deild lögreglunnar rannsakar málið. Fullkominn óþarfi og málalenging að tala um …
Molar um málfar og miðla 1487
Það hefur alveg gleymst að segja dagskrárstjórum Ríkissjónvarpsins frá því að í dag (06.06.2014) eru sjötíu ár liðin frá innrásinni í Normandí. Innrásin var heimssögulegur atburður, vatnaskil í seinni heimsstyrjöldinni. Það er eins og enginn í hópi dagskrárstjóra Ríkisútvarpsins viti neitt eða vilji neitt vita um söguna. En því betur eru menn að sér um …