Egill Þorfinnsson skrifaði Molum þetta ágæta bréf fyrr í vikunni (02.07.2013): ,,Sæll Eiður, Það er ekki oft sem ég sendi þér línu en geri það núna og mætti kannski gera það oftar. Þessi frétt er á dv.is í dag undir fyrirsögninni „Vísað burt út af Gordon Ramsey“ Ég gríp hér í miðja fréttina. En á …
Molar um málfar og miðla 1245
Molavin sendi eftirfarandi (02.07.2013):,,HARÐUR ÁREKSTUR VIÐ LANDSPÍTALANN segir í fyrirsögn fréttar á ruv.is (2.7.13) og fréttin hefst á þessum orðum: „Tveir fólksbílar lentu í hörðum árekstri um klukkan hálf tíu á mótum Bústaðarvegs og Háaleitisbrautar í Reykjavík.“ Nú er það rétt að rekstrarlega heita sjúkrahúsin í borginni einu nafni Landsspítalinn – háskólasjúkrahús. Það er stofnanaheitið. Landspítalann þekkir fólk sem …
Molar um málfar og miðla 1244
Gunnar sendi eftirfarandi (01.07.2013): „Hundruðir smábáta …“ sagði Heimir Már Pétursson í hádegisfréttum Bylgjunnar í dag, mánudag. Maður hefði haldið að svo reyndur fréttamaður vissi betur og segði: „Hundruð smábáta“. Þá virðist vefjast fyrir mörgum hvort tala eigi um hljómsveitir og íþróttahópa í eintölu eða fleirtölu. Andri Freyr sagði í morgun: „Brother Grass leika …
Molar um málfar og miðla 1243
Úr fréttum Stöðvar tvö (29.06.2013): … en fornleifafræðingum grunar. Það var og! Þeim grunar. Villur af þessu tagi ættu ekki að heyrast í fréttatímum. Er ekkert eftirlit með því hvernig skrifað er á þessum bæ? Molavin heyrði þetta líka og skrifaði: .,, Það er gott fyrir verðandi fréttamenn að fá sumarstörf á fréttastofum, en þá …
Molar um málfar og miðla 1242
Molavin sendi eftirfarandi (29.06.2013): ,,Á bílasíðum Morgunblaðsins 28.6.13 má lesa þetta: „Auk þessa þá sögðu bílstjórarnir að til þess að minnka eyðsluna skal aka hnökralaust…“ Hér er „þá“ ofaukið og talmálslegt og á ekki heima í ritmáli, auk þess sem ætti að standa „skuli aka…“ Þekkingarleysi, óvandvirkni og hreint fúsk er orðið regla frekar en …
Molar um málfar og miðla 1241
Trausti vitnar í mbl.is (25.06.2013): ,,Maður sem handtekinn var í gær, grunaður um fjögur morð í frönsku Ölpunum í fyrra, hefur verið sleppt gegn tryggingu.“ Hann spyr: Vinna eintómir unglingar á Mbl? Von er að spurt sé. Sjá: http://www.mbl.is/frettir/erlent/2013/06/25/brodurnum_sleppt_gegn_tryggingu/ Meira frá Trausta með vísun í sama fjölmiðil: ,,http://www.mbl.is/smartland/heilsa/2013/06/25/laeknanemi_svarar_steinari_b/ Af því að vitið er nú ekki …
Molar málfar og miðla 1240
Í fréttum Ríkisútvarps á þriðjudagskvöld (25.06.2013) talaði utanríkisráðherra okkar um hin ýmsustu verkefni. Molaskrifara hefur alltaf þótt þetta orðalag vera barnamál. Gunnar sendi eftirfarandi (26.06.2013): „Hópurinn skilaði áliti til … Ragnheiðar Elínu Árnadóttur,“ var sagt í hádegisfréttum Ríkisútvarpsins í dag, miðvikudag. Ekki einu sinni, heldur tvisvar, því fréttamaður sagði þetta í pistli sínum og …
Molar um málfar og miðla 1239
Frá Molavin (23.06.2013): Á heimasíðu Ríkisútvarpsins segir í dag frá láti danska arkitektsins Henning Larsen (23.6.): „þótt sjálfur hafi Henning Larsen sagt sig frá síðasnefnda verkinu vegna deilna við fyrirtækjasamsteypuna Mærsk Mc-Kinney Møller, sem fjármagnaði húsið.“ Hér er farið rangt með. Fyrirtækið sem um ræðir heitir A.P.Møller en það var forstjóri þess og aðaleigandi, Mærsk Mc-Kinney …
Molar um málfar og miðla 1238
Frá Molavin (24.06.2013): ,,Fréttaþulur hádegisfrétta RUV 23. júní talaði ítrekað um að lóðasala í borginni myndi valda verðbólgu. Það fannst mér skrýtið og hlustaði því á viðtalið í fréttinni sjálfri. Þar var talað um verðbólu, sem er annað mál. Í afkynningu frétta var svo verðbólgan aftur komin á sinn stað. Eru þulir hættir að lesa …
Molar um málfar og miðla 1237
Í fréttum Stöðvar 2 á laugardagskvöld (22.06.22013) var talað um þorsktungur. Ekki sér Molaskrifari betur en hér sé verið að tala um gellur. Hann veit að Norðmenn tala um torsketunger, en á Íslandi höfum við sjálfsagt í aldir talað um gellur, sem eru gómsætur herramannsmatur. En kannski þekkja ungir fréttamenn ekki orðið gella hvað þá …