Það er fróðlegt að fylgjast með því hvernig fámennum krakkahópi tekst að hafa alla íslenska fjölmiðla að fíflum. Greinilegt er að fjölmiðlar eru látnir vitna í hvert skipti sem vitleysisgangurinn byrjar hvort sem það er að raska friðhelgi einkalífs á heimilum ,senda fölsk boð um bruna eða stöðva vinnu með ofbeldi. Þá er hlaupið til, skrifað og myndað og viðtöl tekin.
Þetta eru ekki fréttir. Ef fjölmiðlar hættu að gapa í hvert skipti sem krökkunum þóknast að leysa vind, mundu þau fljótlega hætta og útlendingarnir sem eru uppistaðan í hópnum mundu hverfa til sína heima og láta okkur í friði.
Aumkunarverðast er samt að heyra alþingismann lofa þessar lögleysur.
Ekki hátt risið á þeim bænum.
![]() |
Þáðu ekki boð um fund |
1 athugasemd
Ekkert ping ennþá
ESG skrifar:
25/07/2008 at 21:43 (UTC 1)
… eru látnir vita… átti þetta auðvitað að vera.