Það var lofsvert framtak hjá RÚV að sýna heimildamynd um kínverska flotaforingjann Zheng He. Þetta var að vísu ekki þýsk heimildamynd eins og kynnt var heldur þýsk samantekt úr sjónvarpsþáttaröð, einir sex þættir, muni ég rétt sem kínverska sjónvarpið CCTV gerði fyrir nokkrum árum.
Kvöldstund í Beijing fyrir fjórum árum átti ég þess kost ásamt fleirum að ræða við kvikmyndagerðarmanninn sem stóð fyrir þessari þáttaröð. Þá kom fram að hann hafði ekki frjálsar hendur um gerð þáttanna , því opinberir eftirlitsmenn urðu að samþykkja allar tökur og texta.
Fyrir þá sem vilja kynna sér þetta efni betur bendi ég á tvær bækur.
1421 The Year China Discovered the world eftir breska sjóliðsforingjann Gavin Menzies. Þar kemur Ísland m.a. við sögu, en kannski teymikr frjótt ímyndunaraflið höfundinn nokkuð langt, en engu að síður eru tilgátur hans margar afar sennilegar þótt ótrúlegar kunni að virðast við fyrstu sýn. Ekki síst þær kenningar sem hann byggir á vindum og hafstraumum sem hann hann þekkir flestum betur sem kafbátsforingi í breska flotanum.Einnig nefni ég bókina When China Ruled the Seas:The Treasure Fleet of the Dragon Throne eftir Louise Levathes.Sú bók er þurrari en öruggari sagnfræðiheimild.
Í þættinum kom fram að Kínverjar voru öldum á undan Evrópumönnum í skipasmíðatækni og notuðu vatnsþétt skilrúm í sínum skipum löngu fyrr en Evrópumönnum datt það í hug. þeir fundu líka upp skutstýri fyrir skip ( e. rudder). Áhugavert efni um uppfinningar Kínverja er t.d. að finna í lítill bók Science in Traditional China sem geymir nokkra fyrirlestra eftir Joseph Needham, en hann var frumkvöðull , höfundur og ritstjóri hins mikla verks Science and Civilisation in China .
Skildu eftir svar