«

»

Bensínverð: Langlundargeð neytenda ,- og stjórnvalda

Langlundargeð okkar íslenskra neytenda,- og  stjórnvalda,-  gagnvart olíufélögunum er með ólíkindum. Á sömu stundu og fréttir berast  af hækkunum olíuverðs erlendis hækka olíufélögin á Íslandi  verð  til neytenda. Þegar  olíuverð hinsvegar lækkar erlendis, – og það hefur lækkað mikið  að undanförnu,- gerist ekkert  á sömu stundu, heldur  gerist lítið  og  seint.

Ótrúleg var fréttin í dag um að olíufélögin hefðu ÖLL  lækkað bensínverð um eina krónu og  hráolíuverð um tvær  krónur. Öll á  sama  tíma og öll um  sömu upphæð. Þetta er sko að kunna að  ganga í takt ! Það getur ekki verið  að  stjórnvöld láti þetta augljósa   samráð óátalið.

Hvað geta neytendur gert? Væntanlega  ekki mikið, en gaman  væri að heyra tillögur.

Hin misheppnuðu mótmæli  trukkakarla  í vor höfðu  engin áhrif og  voru aðstandendum  til skammar. Það þarf að  fara  aðrar leiðir, en þær  eru vandfundnar.

Ýmsir  bundu  vonir  við Atlantsolíu þegar það  fyrirtæki var sett á laggirnar. Ég var þeirra á meðal. Sé ekki betur en  Atlantsolía  sé orðinn partur  af sukksúpunni. Það  sama  gerist með Atlantsolíu og  gerðist með Hagtryggingu í gamla daga,sem  stofnsett var  gegn   gömlu tryggingarfélögunum. Hagtrygging  gekk  svo bara í lið með óvinunum og  gufaði loks upp.

Kaup á smáhlut í Hagtryggingu  voru  fyrsta  vonda  reynsla mín af hlutabréfakaupum.

Talsmaður Olís í  sjö fréttum í sjónvarps  ríkisins var í senn  grátbroslegur og  brjóstumkennanlegur. Enda vart á  öðru von. Hann var að  reyna að verja málstað sem er óverjanlegur.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>