Hér er, eins og lesendur vita manna best, oft fjallað um sömu hlutina í þeirri von að dropinn holi steininn. Fréttamaður Stöðvar tvö sagði (16.04.2011): Þú hyggst flytja erlendis. Menn dveljast erlendis eða eru erlendis. Flytja til útlanda eða fara til útlanda. Þetta er rótgróið í málinu og engin ástæða til að breyta því.
Það er gaman að rekast á blaðagreinar,sem eru svo vel skrifaðar að það er næstum nautn að lesa þær, og skipta skoðanir höfundar og lesara þá engu. Þannig var um grein í Morgunblaðinu 16.apríl: Hífðu í búkkann og statt’ann upp brekkurnar, Steingrímur. Höfundur greinarinnar er Pétur Óli Pétursson,hefilstjóri. Hann heldur betur á penna en flestir langskólagengnir fréttaskrifarar. Það var gaman að bera grein hefilstjórans saman við grein lögfræðings og Framsóknarþingmanns á sömu síðu.
Ritsnilldin ræður ríkjum á mbl.is,(16.04.2011): Ölvuðum og mjög æstum manni sem hafði verið til vandræða var vísað út af skemmtistaðnum Lundinn í Vestmannaeyjum í nótt. Kom hann sér strax í einhver áflog fyrir utan staðinn og þegar hann reyndi aftur að komast inn á staðinn var honum enn vísað frá af dyravörðum. Það er fallafælni að beygja ekki nafn staðarins, — vísað út af skemmtistaðnum Lundanum, ætti þetta að vera. Einhver áflog ??? Vísað frá af dyravörðum. Þarna færi betur að nota germynd. Vísuðu dyraverðir honum frá.
Í sunnudagsþættti Sirrýjar á Rás tvö (17.04.2011) var fróðlegt viðtal við Sigurgeir Pétursson skipstjóra á Nýja Sjálandi, sem er frumkvöðull í bættri umgengni við hafið á fiskiðmiðunum við Suðurskautslandið. Við Einar Benediktsson sendiherra áttum góðan dag með Geira P. á Nýja Sjálandi fyrir nokkrum árum.
Sunnudagsþátturinn á Rás tvö er áreiðanlega vinsæll hjá mörgum hlustendum, en stjórnandi fer oft háskalega nærri auglýsingamörkunum. Það er vísast hætt að skipta máli hjá stjórnendum í Efstaleiti. Í þessum efnum eiga að gilda siðareglur, sem stjórnendur virða. Þetta gildir raunar um fleiri þætti eins og t.d. Kastljósið.
2 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Eiður skrifar:
18/04/2011 at 11:33 (UTC 0)
Tók eftir þessu, Björn. verður nefnt í Molum.
Björn S. Lárusson skrifar:
18/04/2011 at 10:54 (UTC 0)
Þeim er ekki alls varnað fréttamönnunum á Stöð 2. Í kvöldfréttum í gærkvöldi sagði einn fréttamaðurinn „… samningarnir runnu út um þúfur“. Eitthvað fer út um þúfur eða rennur út í sandinn – eða hvað?