«

»

Aulafyndni á Austurvelli

Fréttatímar eiga að vera fréttatímar, –   ekki vettvangur   fyrir aulafyndni fréttamanna. Stutt  er síðan fréttamaður RÚV stóð á  Austurvelli og át  harðsoðið  egg. Þetta átti að vera  fyndið   af því að mótmælendur  höfðu kastað  eggjum   í  Alþingishúsið daginn áður. Þetta var hinsvegar  bara bjánalegt.

Í gærkveldi   féll annar fréttamaður   RÚV  í þessa  sömu gryfju ,,— á  Austurvelli.  Hann vitnaði í hið undurfallega  ljóð  Huldu „Hver á  sér  fegra   föðurland“ .  Einhverskonar aulafyndni um „föðurland“ af því að  á  Austurvelli  var  næðingur og kuldi, og   orðið  föðurland   er líka  notað um  nærbrækur úr íslenskri ull.  Þetta var heldur ekki  fyndið.

 Fréttastofan  á að halda  sig  við fréttir, en láta  Spaugstofuna um að  segja  brandara , –  sem  Spaugstofumönnum tekst oft  alveg  prýðilega.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>