Það er svo sem tilbreyting að heyra fréttamenn sletta dönsku,en ekki ensku, eins og gert var í fréttatíma RÚV sjónvarps í kvöld. Fréttamaður sagði: „..hérna við kajann liggur…“. Það er alveg óþarfi að nota dönskuslettu, þegar verið er að segja okkur að eitt af varðskipum Landhelgisgæslunnar liggi við bryggju.
Enskusletturnar eru samt á sínum stað hjá RÚV. Í spurningaþættinum Gettu betur í gærkveldi talaði stjórnandinn um “ að smæla framan í heiminn…“. Þótt Megas hafi notað þessa slettu í texta og Toyota umboðið tekið sérstöku ástfóstri við hana og hamrað á henni í auglýsingum viku eftir viku , þá eru það vinsamlega tilmæli til Ríkisútvarpsins að það hlífi okkur við þessari hörmung. Það er ekkert að hinni gullfallegu íslensku sögn að brosa, og allir vita að „Bros getur dimmu…..“. Gerum slettuna „að smæla“ útlæga úr íslensku máli.
Í fréttum RÚV sjónvarps í kvöld var tekið svo til orða „að ganga fast á eftir einhverju….“. Að ganga fast á eftir einhverjum er að fylgja fast í fótspor einhvers. En að ganga fast eftir einhverju er að krefjast einhvers, – jafnvel án tafar, eða sækja eitthvað fast. – Þannig er nú það.
5 athugasemdir
Ekkert ping ennþá
Sverrir Einarsson skrifar:
02/03/2009 at 21:15 (UTC 0)
Syngur ekki Bubbi Morthens um að Guð „gædi“ þig gegnum daginn?
Jónas Bragi skrifar:
02/03/2009 at 15:35 (UTC 0)
Það er búið að eiðileggja meiningu sagnarinnar „væntanlega“
Kreppan verður væntanlega dýpri en …….!
Það verður væntanlega stormur á morgun. !
Kemur ekki væntanlega af orðinu að vona?
Það er eins og að það sé búið að breyta merkingu „væntanlega“ í „af öllum líkindum.“
Maður hefur heyrt „væntanlega“ ranglega notað oft hvern dag síðastliðin ár! Það pirrar mig í hvert skipti og stundum fengið mig til þess að hlæja.
Eiður skrifar:
02/03/2009 at 13:05 (UTC 0)
Svo ég leiðrétti nú sjálfan mig, – áður en einhver annar gerir það. Það vantaði eitt orð í tilvitnunina í Einar Benediktsson. Þetta á auðvitað að vera „Eitt bros getur dimmu …“
María Kristjánsdóttir skrifar:
02/03/2009 at 08:21 (UTC 0)
Verst af öllu þykir mér þó : Eigðu góða helgi.
Hallgrímur Óskarsson skrifar:
02/03/2009 at 00:01 (UTC 0)
Það er þarft að minna á þetta. Takk fyrir að gera það.
Kveðjur,