«

»

Molar um málfar og miðla 1685

Hér koma nokkrar línur frá gömlum vinnufélaga, sem stundum gaukar ágætum athugasemdum að Molaskrifara:

,,Fréttablaðið líti í eigin barm.

Í dag (27.02.2014) er ágætur leiðari í Fréttablaðinu um heimskupör foreldra sem hætta lífi barna sinna með því að fá þau ekki bólusett við hættulegum barnasjúkdómum. Þar er líka vikið að stóriðnaði, sem óhefðbundnar lækningar eru orðnar og fer stöðugt vaxandi. Hann felst í því að fólki er talin trú um að alls kyns „töfraefni“ geti læknað hin margvíslegu mein, allt frá vindgangi til krabbameins. Það er hins vegar athyglisvert í þessu sambandi að Fréttablaðið sjálft byggir afkomu sína að talsverðu leyti á þessu trúboði sölumanna snákaolíu. Nær daglega eru margar blaðsíður lagðar undir þetta efni; auglýsingar um „allra meina bót“, sem settar eru fram sem raunveruleg blaðamennska”. Molaskrifari þakkar bréfið. Hverju orði sannara.

 

Molavin skrifaði (28.02.2015): ,,Í Netmogga (28.2.2015) segir m.a.: „verður Toyota Corolla-bif­reið dreg­in úr potti með nöfn­um áskrif­enda…“ Myndlíkingar eru algengar í máli okkar en ekki eru allir alltaf kunnugir merkingu þeirra. Talað um að detta í lukkupottinn (vera heppinn, t.d. í happdrætti) – og nöfn hinna heppnu eru stundum dregin (úr hatti eða skál). En bifreiðar eru varla dregnar úr potti með auðveldum hætti. Og varla er gott að vera sá heppni, sem er dreginn út (af veitingastað), eins og færist í vöxt að segja þegar matstaðir auglýsa sig á fólksmiðlum. Ef til vill finnst einhverjum þessi aðfinnsla nöldur, en mér finnst betra að fólk, sem starfar við að tjá sig, hugsi það til enda, sem það skrifar.” – Molaskrifari þakkar bréfið. Þetta er ósköp hallærislegt orðalag, sem  vikið hefur verið að hér í Molum áður.

 

Þágufallssýkin, sem svo er nefnd er hvimleið , en virðist því miður heldur vera í sókn. Undir lok Morgunvaktar Ríkisútvarpsins á föstudag (27.02.2015) sagði einn umsjónarmanna: Oft langaði manni mest til að vera heima. Er þetta ekki umhugsunarefni fyrir málfarsráðunaut?

 

Ekki verður annað séð, frá sjónarhóli Molaskrifara, en vel hafi til tekist með úthlutum Blaðamannaverðlaunanna í ár, sem tilkynnt var á laugardag (28.02.2015). Allt hafi það verið verðskuldað. Til hamingju þið öll, sem þarna komið við sögu. http://www.ruv.is/frett/unnu-annad-arid-i-rod-verdlaunamyndirnar

 

Þegar Ríkissjónvarpið birtir okkur frétt og sagt er að fréttin og myndin séu frá í gær, en efnið er í raun hálfsmánaðar gamalt , þá er eitthvað að í verkstjórn og vinnulagi á þessari fjölmennustu fréttastofu landsins. Þetta gerðist fyrr í síðustu viku.

 

Góður Landi í Ríkissjónvarpinu á sunnudagskvöld (01.03.2015) og ómetanlegar myndir og ræður  frá Kvennafrídeginum 1975 í þættinum Öldin hennar sem kom í kjölfar Landans.

 

Fyrirvari: Athugasemdir frá öðrum á þessari síðu eru á þeirra ábyrgð.

Síðuskrifari áskilur sér rétt til að fjarlægja dónaleg eða meiðandi ummæli, nafnlausar athugasemdir eða athugasemdir undir dulnefni. Lesendabréf eru vel þegin. Bréfritarar eru beðnir að taka fram hvort birta megi bréf, eða ábendingar þeirra, undir nafni, – ESG

 

 

 

1 athugasemd

Ekkert ping ennþá

  1. Kristján skrifar:

    Fréttatími Stöðvar 2. er stundum ansi rýr og lélegur. Ekki liðnar nema um 10 mínútur
    þegar Kristján Már birtist á skjánum með „frétt“ úr sveitaferð sem hann fór í fyrir löngu síðan. Þetta gerist ítrekað og sýnir lítinn metnað hjá Stöð 2.
    Hins vegar leggja fréttamenn þeirra mikla áherslu á að þeir sjálfir sjáist mikið í hverri frétt sem flutt er.

Skildu eftir svar

Netfang þitt mun ekki sjást.

Þú mátt nota þetta HTML tags og attributes: <a href="" title=""> <abbr title=""> <acronym title=""> <b> <blockquote cite=""> <cite> <code> <del datetime=""> <em> <i> <q cite=""> <s> <strike> <strong>